Afsökunarbeiðni til Stefáns Snævarr

Íslendingar eru afskaplega þjóðernissinnaðir. Við erum stolt af okkar menningararfi og höfum, af landfræðilegum og menningarlegum ástæðum, líklega sterkari þjóðarvitund en margir aðrir hópar sem með misgóðum rökum skilgreina sig sem þjóð. Þjóðernishyggja á Íslandi er þó ekki hatursfull og fasísk eins og oft vill verða, hún er aðallega bara dálítið sveitaleg og í aðra röndina krúttleg.

Á stríðsárunum leitaði fjöldi Gyðinga til Íslendinga og bað um hæli í landinu og vernd gegn ofsóknum. Íslendingar sögðu nei. Yfirvaldið vísaði þessu fólki frá og ekki nóg með það heldur voru ekki færri en 9 Gyðingar reknir úr landi (Þór Whitehead segir 12 en mér finnst ekki skipta ölllu máli hver talan var heldur hitt að þetta gerðist.) Kannski tókst einhverjum þessara einstaklinga að flýja á náðir betra fólks en Íslendinga en ætla má að margir þeirra hafi farið hingað:

Starved prisoners, nearly dead from hunger, pose in concentration camp in Ebensee, Austria.  The camp was reputedly used for "scientific" experiments.  It was liberated by the 80th Division.  May 7, 1945.  Lt. A. E. Samuelson.  (Army) NARA FILE #:  111-SC-204480 WAR & CONFLICT BOOK #:  1103

Hvað heitir það á mannamáli að senda fólk í svona aðstæður? Það heitir „Ísland fyrir Íslendinga“, „raunhæfar hugmyndir um hvað við getum tekið við miklu veseni frá óviðkomandi fólki“, „Okkar fólk fyrst“. Það heitir hugsanlega hófsöm þjóðernishyggja og þó varla. Allavega ekki nazismi. Enginn er nazisti nema hann beri hakakross.

Handhafar ríkisvaldsins hafa aldrei viðukennt að íslenska ríkið beri neina ábyrgð á Gyðingaofsóknum. Ég er ekki hissa. Auðvitað er afsökunarbeiðni frá svo stórri stofnun lítils verð en auk þess getur ríkisvaldið ekkert viðurkennt fyrri mistök án þess að endurskoða um leið þá stefnu sem það rekur gagnvart flóttamönnum enn í dag.

Á árunum 1996-2010 leituðu 736 nauðstaddir flóttamenn á náðir Íslendinga. Og undarlegt nokk, ekki vegna þess að Ísland sé svo æðislegt, heldur í flestum tilvikum vegna þess að þeir voru stöðvaðir á leið til Kanada. 77 fengu aðstoð eftir að hafa setið í fangelsi fyrir að vera útlendingar og beðið svo milli vonar og ótta í marga mánuði, sumir í mörg ár, án þess að eiga möguleika á því að vinna, fara í skóla, stofna fjölskyldu, ferðast eða gera yfirhöfuð neitt nema hanga og bíða. Það voru semsagt 77 sem hlutu náð fyrir augum Íslendinga. Hinir voru látnir róa. 185 gáfust upp þegar þeir sáu fram á margra ára limbó án raunhæfrar vonar og drógu umsóknir sínar til baka eða flúðu eitthvert annað. Hinir 208 voru handteknir og fluttir nauðugir í þessar aðstæður:

30.07.15-arrested-immigrants-fylakio-detention-center-greece-590x393

Þaðan voru þeir svo reknir heim til að lifa við örbirgð eða stríðsástand, nauðungarhjónabönd, þrældóm, nauðungarvændi, fangelsun vegna skoðana sinna, pyntingar eða aðrar póltískar ofsóknir, oftast margt af þessu í senn, sumir voru jafnvel sendir út í opinn dauðann.

Og þetta heitir ekki nazismi, enda er það svo afskaplega ljótt orð. Það er engin helför að leyfa öðrum að kúga eða drepa skitna 18-28 menn á ári (eftir því hvort maður reiknar þá með sem fóru sjálfviljugur eða aðeins þá sem voru fluttir í járnum.) Þetta heitir að virða samninga við aðrar þjóðir (sem vilja auðvitað ólmar fá sem flesta flóttamenn til sín.) Þetta heitir raunsæi og hófsemi. Við gerum þetta ekkert af því að okkur sé illa við þetta fólk, heldur af því að það tilheyrir okkur ekki. Af því að okkars erum þjóð en þeir ekki.

Það er ægilega dýrt fyrir samfélagið að taka á móti flóttamönnum bara til að senda þá burt aftur. Fyrst þarf að útvega þeim fangavist á kostnað ríkisins, svo þarf að banna þeim að vinna og borga þeim í staðinn dagpeninga og hýsa þá á gistiheimili fjarri öllum stofnunum og samtökum sem vilja rétta þeim hjálparhönd og að lokum þarf að borga löggunni stórfé fyrir að rífa þá upp úr rúmi, handjárna þá og koma þeim í flug, sem vitanlega þarf að borga líka. Þetta er auðvitað bara rugl. Það væri miklu hagkvæmara að koma bara upp litlum klefa með góðu gasgrilli í fullorðinsstærð. Það mætti skreyta klefann með mynd af sauðkind til að gera hann þjóðlegri. Auk þess væri eflaust hægt að fá vaskan gassölumann, svokallaðan sölumann dauðans, til að gefa gasið, út á auglýsingu á RÚV. „Hæ, Gulli gas hér; við erum að gasa flóttamann, og svo bara grilla og tsjilla!“

Neinei, svoleiðis myndum við aldrei gera því nazismi þrífst ekki á Íslandi nema þá kannski í sköpunarhreyfingunni. Hér ríkir aðeins ósköp hófsamleg þjóðernishyggja. Þessi sem heldur Íslendingasögunum á lofti, finnst Skagafjörður fegursti staður á jarðríki og sendir útlendinga í klærnar á yfirvöldum sem handarhöggva þjófa og hýða fórnarlömb kynferðisofbeldis. Við erum nefnilega svo mikil krútt og svo borðum við líka SS pylsur. Í lopapeysum sko en ekki jökkum skreyttum hakakrossi eða neitt svoleiðis ógeð. Og það er ekki það að við viljum neinum illt. Við höfum bara svo rosalega mikið nóg með að hjálpa sjálfum okkur að við höfum ekkert efni á því að láta SS pylsuna standa í okkur á meðan við hugsum um manneskju sem heitir Wali Safi, sveltandi í Grikklandi eða manneskju sem heitir Ilyas Sultani í höndum taliba. Þetta er ósköp þjóðlegt allt saman.

Um daginn reiddist ég Stefáni Snævarr hrottalega. Hef verið frekar upptekin af vaxandi útlendingahatri á Íslandi undanfarið og sprakk gersamlega þegar ég sá fræðimann kalla það „alþjóðarembu“ að leggja sig fram um að uppræta alla þjóðrækni að því marki sem hún bitnar á manneskjum. Látum það vera þótt nýnazistakjánar bulli en þegar menn sem tekið er mark á fordæma ekki þjóðernishyggju þá er nú ástandið orðið svart. Mér fannst hann sem fræðimaður hreinlega ekki hafa neinn rétt til þess að sitja í fílabeinsturni og tala um þjóðernishyggju sem einhverskonar Framsóknarrómantík á sama tíma og útlendingahatur er að ryðja sér til rúms á Íslandi. Ég vænti ekki mikils af fræðimannasamfélaginu en það hefur þó ríkt nokkuð góð sátt um það meðal sagnfræðinga og heimspekinga að líta þjóðernishyggju neikvæðum augum, mér fannst Stefán vera að rjúfa einhverskonar hollustuhefð með því að blaka við alþóðasinnum og ég kallaði hann m.a.s. nazista.

Það var ómaklegt af mér því Stefán Snævarr er enginn nazisti. Ekki frekar en fólkið sem finnst Jónas Hallgrímsson svo þjóðlegur að það tekur engan séns á að klúðra ítölsku sonnettunni hans með því að bjarga lífi einhvers ókunnugs halanegra. Og líklega enn síður, því Stefán varar þó allavega við því að halda aðeins á lofti þeim verkum forfeðranna sem við erum stolt af en gleyma skömminni.

Þetta var ómaklegt af því að Stefán hefur að sjálfsögðu fullan rétt á að kalla það alþjóðarembu að vilja uppræta algerlega allt daður við þá hugmynd að menning okkar sé svo merkileg að það megi halda öðru fólki niðri vegna hennar eða þvinga það til að taka upp okkar venjur. Ég er því ósammála en ég hefði átt að svara á allt annan hátt. Það að slengja fram gildishlöðnu orði, bendir til tilfiningalegs uppnáms en ekki vilja til að halda uppi gagnlegum samræðum.

Þetta var ómaklegt af mér vegna þess að hlutverk háskólans og fræðimanna er ekkert og hefur ekki verið það sem ég vil að það sé, að vera broddfluga á samfélaginu, það er ekki hlutverk menntamanna heldur anarkista og skálda. Hlutverk fræðimannsins er ekki það að vera pólitískt afl, heldur að skrifa námsefni sem er til þess fallið að ala upp fleiri Framsóknarmenn (Framsóknarmenn í merkingunni miðjumoðarar sem halda að með því að taka enga alvöru afstöðu, komist þeir bara upp með að styggja engan, þetta fólk finnst í öllum flokkum.) Eina krafan sem ég get gert til fræðimanna er sú að þeir fari rétt með heimildir.

Þetta var ómaklegt af mér vegna þess að ég get ekkert ætlast til þess að Stefán eða neinn annar, hafi skilning á því hversvegna ofstækisfullir alþjóðasinnar álíta að eina leiðin til að skapa friðsamlegt samfélag í Evrópu, sé að hafna algerlega öllum hugmyndum um að okkar fólk og siðir og menningararfur séu eitthvað merkilegri en menning annarra.

Það er ekki við öðru að búast en að fólk fari að efast um að maður sé með réttu ráði þegar maður er farinn að sjá nazima í jafn lúðalegri þjóðrembu og því að líta á SS pylsur sem sameiningartákn. Og já, ég er að reyna að koma því til skila að þetta ofstækisfulla viðhorf mitt, að þjóðernishyggja sé ekki skárri undir merkjum hófs og skynsemi, á sér háalvarlegar ástæður. Ég vil helst að sem flestir viti hvers vegna mér finnst þjóðernishyggja vera einhver mesta meinsemd sem fyrirfinnst í vestrænum samfélögum í dag og ég vil líka gjarnan koma til skila þeirri skoðun að háskólafólk, fjölmiðar og jafnvel stofnanir eins og kirkjan, ættu að hætta að gefa sig út fyrir að vera hlutlaus. Ég er hinsvegar ekki að reyna að réttlæta það að hafa notað orðið nazismi um allar tegundir þjóðernishyggju. Ég átti ekkert með það og allra síst í samfélagi sem lítur ekki á það sem neitt athugavert að brjóta kerfisbundið gegn mannréttindum flóttafólks. Samfélagi sem heldur að nazismi sé bara það að reka útrýmingarbúðir en ekki að senda fólk í þær. Auk þess er það rétt hjá Hermanni Stefánssyni að það er varasamt að gengisfella hugtök og þótt mér finnist öll þjóðernishyggja ógeðfelld þá er í alvöru langur vegur á milli þess að veifa fána og reka útrýmingarbúðir.

Ég biðst því afsökunar á því að hafa kallað Stefán Snævarr nazista. Ekki af því að ég hafi áhyggjur af því að hann vilji lögsækja mig, (það er honum eftir sem áður velkomið því hvorki óttast ég yfirvaldið né ber ég sérstaka virðingu fyrir álit þess á því hvað megi segja) heldur vegna þess að ég missti stjórn á skapi mínu og kom illa fram við hann að ósekju.

Share to Facebook

One thought on “Afsökunarbeiðni til Stefáns Snævarr

  1. ——————————————- 
    Er ekki, náðarsamlegast, möguleiki að bera virðingu fyrir eigin menningu án þess að halda að hún sé eitthvað merkilegri en menning annarra?
    Mér finnast t.d. ýmis góð skrif til varnar útlendingum á Íslandi og öðru landflóttafólki fremur til vitnis um ágæti og styrk íslenskar menningar en eymingja útlendingahræðslan.

    Takk fyrir ágæta pistla.

    Posted by: Valdimar Jónsson | 6.09.2011 | 17:52:25

    ——————————————- 

    Mér finnst vandinn felast í þessu:

    „Um daginn reiddist ég Stefáni Snævarr hrottalega. Hef verið frekar upptekin af vaxandi útlendingahatri á Íslandi undanfarið og sprakk gersamlega þegar ég sá fræðimann kalla það „alþjóðarembu“ að leggja sig fram um að uppræta alla þjóðrækni að því marki sem hún bitnar á manneskjum.“

    Ég fæ ekki séð að það sé rétt að segja þetta vera lýsandi fyrir afstöðu Stefáns. Þau Stefán og Eva koma bara til með að vera ósammála um hvenær hlutirnir „bitna á manneskjum“ og í hversu víðu samhengi slíkt má gerast ef það er til góðs í einhverjum skilningi.
    Það er síðan áhugavert að sjá Evu tala um að þjóðremban þrífist í hóflegu þjóðernishyggjunni. Þau rök minna sterkt á þá hugmynd að bókstafstrú og trúaröfgar þrífist í hóflegri trú – þess vegna þurfi að útrýma trúarbrögðum.

    Posted by: Kristinn | 6.09.2011 | 20:08:50

    ——————————————- 

    Takk fyrir innleggið Krisinn. Ég held að við getum vel kynnt börnum bókmenntaarfinn, haldið minningu Jóns Sigurðssonar lifandi og borðað saltkjöt af og til án þess að hefja okkur yfir annað fólk með því. Það bitnar hinsvegar á manneskjum ef yfirvöld fara að skipta sér af klæðaburði fólks. Það gæti verið gaman að skoða nokkur dæmi sem þú telur að við Stefán yrðum ósammála um.

    Hófsemdarmennirnir halda farveginum fyrir trúarofstæki opnum já. Og vitanlega vil ég uppræta trú á sama hátt og ég vil uppræta nazisma. Ekki með þöggun eða ofbeldi, heldur með rökum.

    Posted by: Eva | 6.09.2011 | 22:15:42

    ——————————————- 

    Varðandi líkinguna við trúarbrögðin, þá gengur sú umræða gjarnan út á að reyna að meta hvort hófleg trúarbrögð séu svo góð og eðlileg að kostirnir við þau réttlæti ókostina (öfgarnar, rökleysuna, mismununina, ofbeldið og það allt).

    Klassískur hóflegur nútímatrúmaður skilgreinir trú mjög vítt, gerir orðið guð merkingarlaust og talar síðan á óljósum nótum um gagnsemi þess að trúa og að réttlætingin sé fólgin í hughrifum sem séu holl og góð fyrir mannkynið – einhverskonar gefandi andstæða lífsgæðakapphlaupsins og þekkingarleitarinnar.

    Stefán virðist vera að gæla við einhverjar svona hugmyndir um þjóðernishyggju. Að sú afstaða, að þjóðerni sé mikilvægt, skapi jákvæð hughrif og hafi góð áhrif á menningu – eitthvað í þeim dúr, án þess að ég vilji leggja honum orð í munn.

    Þú, Eva, bendir réttilega á að þá þessar hugmyndir megi bara kalla föðurlandsást, en um þau blæbrigði má eflaust deila lengi án þess að niðurstaðan verði skýr.

    Heimur án landamæra virðist vera útópían sem þú ert að gæla við, Eva, og þú virðist ekki hrifin af því þegar menn velta því fyrir sér hvort landamæramenningin hafi kosti sem réttlæti ókostina.

    En ég halllast að því að þú sért stígin dálítið yfir strikið þegar þú kallar hófsama þjóðernissinna sem þó eru að ræða málin og velta vöngum: nazista, rétt eins og það væri ekki til neins að kalla týpískan nútímatrúmann á Íslandi einhverju viðlíka gildishlöðnu nafni.

    En hvað um það, umræðan er skemmtileg, og fróðleg. Það finnst mér nú fyrir öllu.

    Posted by: Kristinn | 7.09.2011 | 21:33:10

    ——————————————- 

    Já það er rétt hjá þér Kristinn, ég gekk of langt eins og ég útskýri einmitt í þessum pistli. Það breytir því þó ekki að hófsemdin hvít er sýnu hættulegri en nakið hatur.

    Já ég vil leggja niður landamæri en það er rangt hjá þér að ég sé því mótfallin að málin séu rædd frá öllum hliðum. Þvert á móti tel ég að eina leiðin til að uppræta fordóma og ranghugmyndir (eins og t.d. þjóðernishyggju og þá hugmynd að þjóðríkið sé einhverskonar náttúrulögmál) sé opin umræða. Ef þú veist einhverja kosti þess að takmarka ferðafrelsi fólks þá þætti mér mikill fengur af því að heyra hverjir þeir eru.

    Posted by: Eva | 10.09.2011 | 14:41:27

    ——————————————- 

    „Heimur án landamæra virðist vera útópían sem þú ert að gæla við, Eva, og þú virðist ekki hrifin af því þegar menn velta því fyrir sér hvort landamæramenningin hafi kosti sem réttlæti ókostina.“

    „Já ég vil leggja niður landamæri….“

    Vilt þú láta leggja niður landamærin í Evrópu? Hvers vegna er þá múslímalöndin með sín landamæri?

    Posted by: Rétthugsun | 11.09.2011 | 11:56:40

    ——————————————- 

    Ég sagði „Já ég vil leggja niður landamæri“

    Hvernig tekst þér að lesa út úr því að ég vilji ekki að lönd muslima leggi niður landamæri?

    Posted by: Eva | 11.09.2011 | 18:50:22

    ——————————————- 

    Láttu þá leggja niður sín landamæri áður en Evrópuþjóðir leggja afnema öll sín landamæri.

    Hefur þú hugleitt það hvers vegna múslímaþjóðir viðhalda sínum landamærum?

    Posted by: Rétthugsun | 11.09.2011 | 23:40:52

    ——————————————- 

    Við sköpum ekki betri heim með því að bíða eftir því að einhver annar geri það.

    Mörg Afríkuríki gefa ekki einu sinni út vegabréf nema með ströngum skilyrðum þannig að markmiðið er ekki bara að hindra að fólk komist inn, heldur líka að hindra að það komist út. Það hentar þeim sem valdið vilja hafa að halda fólki í átthagafjötrum og takmarka áhrif þeirra sem draga réttmæti þess í efa.

    En þótt einhverjir aðrir hegði sér eins og valdasjúkir grimmdarseggir þá er ekki þar með sagt að við þurfum endilega að gera það líka.

    Posted by: Eva | 11.09.2011 | 23:49:17

Lokað er á athugasemdir.