Kampavínsklúbbarnir

Þetta er sennilega steiktasta þingræða sem flutt hefur verið síðan þessi ríkisstjórn tók við völdum. Kampavínsklúbbarnir brjóta ekki bara gegn réttindum kvennanna sem vinna þar (líklega réttindum til að vera þvingaðar til fátæktar) heldur brjóta þeir líka gegn réttindum Bjarkar, af því að klámiðnaðurinn markaðssetur útlit og Björk er (heldur hún) of feit til að leika í klámmynd.

Ef drykkur er óhemju dýr
er drátturinn líklega frír
það er réttindabrot
þetta runk þeirra og pot
því Björk er jafn bústin og kýr.

Share to Facebook