Um aðferðir og markmið kynþáttahatara

Um daginn bauð ég kynþáttahatara velkomna til umræðunnar um málefni innflytjenda, með því skilyrði að þeir útskýrðu hugmyndir sínar og færðu rök fyrir máli sínu. Rökfærslan hefur að vísu gengið brösuglega en þó er ég nú orðin nokkru vísari um hugarheim þessa merkilega fólks sem hefur tileinkað sér mannkyns- og menningarsöguþekkingu sem hingað til hefur verið fræðimönnum gerókunnug. Það er ekki við því að búast að margir leggi það á geðheilsu sína að lesa allan þennan vaðal en ég hef tekið saman helstu niðurstöður.

Hér kemur fyrsti hluti, stutt samantekt á markmiðum kynþáttahatara og þeim aðferðum sem þeir vilja beita. Í næstu pistlum mun ég gera grein fyrir hugmyndum þeirra um erfðafræði, menningu og sögu.


Vandamálið -útrýming hvíta kynstofnsins:

Að mati kynþáttahatara er vandamálið ekki kynþáttaátök, heldur fjölmenningarstefnan. Fjölmenning er svik and-hvítra við „sitt fólk“ og sem slík en hún er í eðli sínu hvorki meira né minna en kerfisbundin útrýming hvíta kynstofnins.

Mannvitsbrekkan Skúli Jakobsson útskýrir:
„Ég bendi bara einfaldlega á það, að það sem þú ert að hvetja til og ert virkur þáttakandi í, veldur útrýmingu á Hvítu fólki. Og að það eru til lög, Útrýmingarlöggjöf Sameinuðu Þjóðanna, til að verjast svona skipulögðum útrýmingaráætlunum, sem þú ert að klárlega að brjóta á fjölmargan hátt.
Þessi þjóðfélags verkfræði, oftast kölluð fjölmenning, byrjaði fyrir nokkrum áratugum og afleiðingin af henni er nú orðin svo augljós að fullkomna trúarblindu þarf til að afneita henni.“

Vandamálið er þó ekki einungis það að innflytjendur mengi kynstofninn, heldur er ógnin sem steðjar að okkur flóknari en ég áttaði mig á. Með orðum Skúla:

„Fæðingartíðni þess hefur verið skerrt vegna innflytjenda stefnu.“

Ekki hafa fengist skýringar á því hvernig innflytjendatefna skerðir fæðingatíðni en svör óskast.

Markmið kynþáttahatara -verndun stofnsins
Ef ég skil rétt eru markmið kynþáttahatara þau að vernda hvíta kynstofninn og evrópska menningu. Þetta markmið setja þeir ofar mannréttindum (ég fékk skýrt og afdráttarlaust svar við þeirri spurningu.)

Aðferð
Sú aðferð sem kynþáttahatarar telja vænlegasta til að stöðva þjóðarmorð, er að takmarka innlutning „skítaskinna“ til hvítra landa.

Ekki vilja þeir þó (samkvæmt svörum kynþáttahatarans Mjölnis) banna æxlun milli kynþátta eða banna hvítu fólki að ferðast, enda þótt hvítar konur gætu þá orðið óléttar og getið af sér skítaskinn í heimalandi sínu. Þeir vilja bara koma í veg fyrir „massivan innflutning“. Eins og Mjölnir orðar það:

„Ef Ísland myndi verða yfir flætt með „nýjum Íslendingum“ og sagt að gömlu Íslendingarnir yrðu að samþykkja þessa „nýju Íslendinga“ sem sína nýju fjölskyldu, myndi það þá valda:
(b) valda alvarlegum andlegum eða líkamlegum skaða á meðlimum hópsins;
(c) veita hópnum viljandi lífsskilyrði sem ætlað er til að koma á veraldlegri eyðingu hans að hluta til eða í heild sinni;
(d) koma á ráðstöfunum sem ætlað er til þess að koma í veg fyrir fæðingar innan hóps;
??????????“

Enn hafa ekki fengist skýringar á því hvað maðurinn er eiginlega að fara með þessu en ef aðrir kynþáttahatarar geta útskýrt þetta væri það vel þegið.

Treglega gengur að fá fram svör við því hversu hátt hlutfall „skítaskinna“ þarf til að um þjóðarmorð sé að ræða og væri æskilegt að kynþáttahatarar fræddu okkur um það..

Ljóst er að kynþáttahatarar vilja að hvítir menn njóti ferðafrelsis enda er engin hætta á að þeir skaði aðra kynþætti með því að dreifa sæði sínu. Eða eins og Mjölnir orðar það:

„þar sem massívur innflutningur og fjölmenning er einungis troðið uppá hvítt fólk, og að nánast einginn hvítur vill flytja til litaðra landa, þá er offjölgun innflytjenda og útrýming á menningarlegum og genalegum/líkamlegum einkennum kynþáttarins einungis vandmál í hvítum löndum. Asíubúar eru ekki að þurkast út, Afríkubúar eru ekki að þurskat út, einungis hvítir.“

Önnur aðferð sem kynþáttahatarar vilja taka upp á arma sína til sporna gegn yfirstandandi þjóðarmorði er að losna við kynþáttablöndunaráróður úr fjölmiðlum. Mjölnir vísar t.d. á þennan tengil
til sönnunar þeim kynþáttablöndunaráróðri sem á okkur dynur.

Fyrir mér hljómar þetta eins og kynþáttahatarar vilji setja tjáningarfrelsinu skorður og þegar ég spyr hvort sá skilningur sé réttur, svarar Mjölnir hinn djúpúðgi að bragði:

„Skemtileg tilviljun að þú skulir nefna tjáningarfrelsi, þar sem fólk eins og þú hafa tekist ýta fjölmenningaráróðri í fjölmiðla og hugarfar fólks á síðastliðnum áratugum. Nánast allir fjölmiðlar á vesturlöndum stimpla hvíta þjóðernissinna sem raista ásamt þeim sem eru á móti kynblöndun og fjölmenningu. En þar sem þettað er einungis gert í hvítum löndum þá er þitt „tjáningarfrelsi“ einungis kvatning til útrýmingu á lífshætti, menningu og einkennum hvítra.“

Þar höfum við það.

Fylgist með næsta pistli en þar mun ég kynna þær niðurstöður um erfðafræði kynþáttahatara sem ég hef komist að með spjalli mínu við þá.

admin

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

54 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

54 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

54 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

54 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

54 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

54 ár ago