Ráðsnilld íslenskra stjórnvalda er með ólíkindum þegar þau vilja losna við flóttamenn. Oftast er Dyflinnarsamkomulagið misnotað til þess að troða flóttamanninum upp á ríki sem þegar taka við miklu fleira fólki en þau ráða við. Það sem gerist þá er að Útlendingastofnun sendir þarlendum stjórnvöldum erindi þess efnis að hún telji að hinu ríkinu beri að taka við manninum. Ef Dyflinnarreglan á við getur hitt ríkið ekkert gert annað en að samþykkja.
Tony Omos var sendur til Sviss á dögunum. Hann á að vísu von á barni á Íslandi og ljóst að með því tiltæki er verið að brjóta alþjóðasamninga um rétt barna og foreldra til að umgangast. Núverandi innanríkisráðherra virðist þó ekki bera sérstaka virðingu fyrir alþjóðasamningum eða íslenskum lögum svo það ætti í sjálfu sér ekki að koma neinum á óvart þótt brotið sé gegn réttindum Tonys og ófædda barnsins hans eins og annarra sem sækja um hæli á Íslandi. Það sem kemur mér á óvart í þessu máli er að þegar Tony lenti í Sviss fékk hann þær upplýsingar að svissnesk yfirvöld hefðu ekki samþykkt að taka við honum. Þar með neituðu þau að hýsa hann. Það sem getur hafa gerst hér er eitt af þrennu;
Hver sem ástæðan er, er staðan þessi; Tony Omos er staddur í Sviss. Meðalhitastig á þessum árstíma er 5°C. Þegar þetta er ritað er hitastigið í Bellinzona, þar sem Tony er staddur, 2°C. Tony er á götunni og hefst við á lestarstöð.
Það er Hanna Birna Kristjánsdóttir sem ber ábyrgð á því.
Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…
Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…
Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…
Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…
Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…
Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…