Um miðjan apríl er lesendum vefmoggans svo boðið upp á myndband af húsleit. Löggan býður semsagt fréttamanni með inn á heimili fólks. Hvað varð um regluna „saklaus uns sekt er sönnuð?“ Og hefur lögreglan virkilega heimild til þess að bjóða öðrum með sér í húsleit og það í því skyni að framleiða afþreyingarefni? Ef svo er hlýtur næsta spurning að vera sú hversu víðtækar heimildir lögreglan hafi til þess að bjóða gestum með í aðgerðir. Má löggan t.d. bjóða Dóra frænda sínum með í húsleit svo hann geti híað á lúserinn sem var með honum í 9. bekk?
Svo virðist sem breska lögreglan hafi með vilja og vitund íslensku lögreglunnar sent njósnara inn í raðir liðsmanna aðgerðahreyfingarinnar Saving Iceland. Ekki hafa fengist nein svör um það hvernig það gerðist eða hver er ábyrgur fyrir því. Lögreglan kemst upp með að ljúga til um afskipti sín af manninum og innanríkisráðherra, sem annars gefur sig út fyrir að vera mannréttindasinna, hefur ekki einu sinni krafist almennilegra svara, svo vitað sé. Hvað þá að einhver hafi þurft að taka pokann sinn.
.
Sami ráðherra vinnur nú að frumvarpi um auknar njósnaheimildir lögreglu. Hann réttlætir það með því að markmiðið sé að koma í veg fyrir njósnir um grasrótarhreyfingar. Dæmi nú hver fyrir sig um trúverðugleik ráðherrans.
Eitt þeirra mála sem komst í almenna umræðu á árinu var barátta föður ungrar stúlku sem lést af völdum læknadóps. Maðurinn vakti athygli almennings á slælegum vinnubrögðum lögreglu, göllum í eftirliti með lyfjagjöfum og baráttu sinni við kerfið. Málið er hið undarlegasta. Barnung telpa deyr af lyfjaneyslu í höndum fullorðins kærasta og málið er ekki einu sinni rannsakað. Maður hlýtur að spyrja hvort þetta séu dæmigerð vinnubrögð lögreglu þegar fíkniefnaneytendur eiga í hlut. Síðar á árinu fékk faðirinn því framgengt að rannsókn yrði hafin á ný.
.
Í lok mánaðarins var varðstjóri lögreglunnar á Selfossi ákærður fyrir að fara offari gegn drukknum pilti. Þetta var ekki eina dæmið af þessu tagi sem var til umræðu í fjölmiðlum á árinu og sannarlega var þetta ekki síðasta fréttin af afglapahætti í herbúðum Þvagleggs sýslumanns.
Mér finnst Þvagleggur sýslumaður einkar vel kominn að titlinum afglapi ársins 2011
Þvagleggur sýslumaður lét ljós sitt skína árið 2011 sem endranær. Spurt hefur verið hvort það að láta barnaníðing ganga lausan með þeim rökum að það þjónaði best hagsmunum fórnarlambsins, hafi verið tilraun til að toppa þvagleggsmálið sem hann er jafnan kenndur við.
Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…
Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…
Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…
Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…
Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…
Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…