Þann 21. apríl birti Kvennablaðið samantekt á rökum sóttvarnaráðgjafa sænskra stjórnvalda fyrir því að viðbrögð Svía við kórónufaraldrinum séu hin réttu.
Ég hef þegar skrifað tvo pistla þar sem ég skoða rök ráðgjafans, Johans Giesecke. Fyrst þau að viðbrögð annarra ríkja séu ekki vísindaleg, og svo þau að rétta leiðin sé sú að vernda áhættuhópa. Í dag ætla ég að skoða eftirfarandi rök:
Þegar Giesecke talar um vægan sjúkdóm á hann við að fáir veikist alvarlega. En stenst sú fullyrðing skoðun? Staðreyndin er sú að það eru ekki nema 5 mánuðir frá því að veiran uppgötvaðist. Við vitum ekki ennþá hversu hátt hlutfall þeirra sem veikjast munu bíða af því varanlegt tjón. Það sem við vitum er eftirfarandi:
Það sér það hver heilvita maður að þetta er ekki vægur sjúkdómur á pari við flensu heldur mjög alvarlegur sjúkdómur sem, enda þótt flestir lifi hann af, hefur í för með sér hættu á varanlegu heilsutjóni. Það er full ástæða til að vera óttasleginn – nógu óttasleginn til að fara varlega.
Hvað dánarhlutfallið varðar þá er einfaldlega ekki vitað hversu hátt það er. Það sem við vitum er eftirfarandi:
Það er við því að búast að þar sem heilbrigðiskerfið var í vanda fyrir deyi hærra hlutfall en við kjöraðstæður. En við vitum bara heldur ekki hvert hlutfallið er í ríkjum þar sem heilbrigðiskerfið er skilvirkt og öruggt og ræður vel við ástandið. Við vissum það kannski ef Svíþjóð hefði verið jafn öflug í smitrakningu og Færeyjar en svo er ekki, skimað hefur verið fyrir veirunni hjá innan við 120.000 manns eða 1,17% þýðisins. Á Íslandi hafa meira en 50.000 manns verið prófaðir eða um 13% þjóðarinnar.
Blessunarlega bendir margt til þess að ef fólk á annað borð fær fullkomna heilbrigðisþjónustu sé dánarhlutfallið mun lægra en það sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gaf út í byrjun mars en á hvaða gögnum er talan 0,1% byggð? Það verður ekki betur séð en að hún sé algerlega úr lausu lofti gripin.
Þannig að nei Giesecke, kórónuveikin er ekki „vægur sjúkdómur á borð við flensu“, þvert á móti er hún mjög skæður sjúkdómur sem allt heilvita fólk ætti að reyna að forðast.
Helgisagan um fæðingu Jesú er á þessa leið: Ágústus keisari vill taka manntal og Jósef…
Ég var beðin um stutt fréttarant fyrir Lífið á Fréttablaðinu í dag. Þetta hef ég…
Gefum okkur að "rétt mál" sé það sem málsamfélagið kemur sér saman um. Látum andartak…
Sumarið 2020 var þáverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Skúli Tómas Gunnlaugsson, sviptur starfsleyfi vegna margháttaðra afglapa…
Margur karlinn er svo heillaður af dindlinum á sér að hann finnur sig knúinn til…