Í síðasta pistli stakk ég upp á því að háskólakennarar veittu nemendum sínum, og öðrum eigendum Háskóla Íslands, rafrænan aðgang að því námsefni sem þeir útbúa, endurgjaldslaust. Ég hefði reyndar átt að taka fram að ég átti eingöngu við akademíska starfsmenn við ríkisháskóla, það eru auðvitað fleiri sem skrifa námsbækur.
Ég hef margsinnis rætt þessa hugmynd við vini og kunningja og alltaf kemur sama athugasemdin; já en hvernig eiga þá kennarar sem skrifa kennslubækur að fá greitt fyrir vinnuna sína?
Staðan er nú einfaldlega sú að fræðistörf eru hluti af starfi akademískra starfsmanna við HÍ. Með öðrum orðum; háskólakennarar eru á launum, hjá nemendum, foreldrum þeirra og öðrum vandamönnum. Þeir eru búnir að fá greitt fyrir vinnuna sína þegar kennslubókin kemur út.
Nú getur auðvitað verið að laun háskólakennara séu of lág en það væri þá nær að hækka þau laun en að viðhafa fyrirkomulag þar sem viðurkennt er að ríkisstarfsmenn noti vinnutímann til að búa sér til auka tekjulind. Auk þess er rétt að hafa í huga að það fer mikið eftir greinum hvort akademískir starfsmenn skrifa kennslubækur, margir birta rannsóknir sínar með öðrum hætti án þess að stunda einkarekstur í tengslum við það.
Þegar háskólakennari hefur nánast lokið ritun nýrrar bókar (í sumum tilvikum hefur hann fengið styrk til að skrifa hana) getur ferlið verið á þessa leið:
Hvernig yrði eigendum húsgagnaverkstæðis við, ef þeir réðu húsgagnahönnuð til starfa og hann tæki upp á því að láta sjálfur framleiða og selja stól sem hann teiknaði í vinnutímanum og er metinn honum til launahækkunar? Hversvegna ættu ríkisstarfsmenn, og reyndar bara þröngur hópur ríkisstarfsmanna, að fá margsinnis greitt fyrir sama verkið?
Finnst eigendum Háskóla Íslands í alvöru ekkert athugavert við þetta fyrirkomulag?
Helgisagan um fæðingu Jesú er á þessa leið: Ágústus keisari vill taka manntal og Jósef…
Ég var beðin um stutt fréttarant fyrir Lífið á Fréttablaðinu í dag. Þetta hef ég…
Gefum okkur að "rétt mál" sé það sem málsamfélagið kemur sér saman um. Látum andartak…
Sumarið 2020 var þáverandi yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Skúli Tómas Gunnlaugsson, sviptur starfsleyfi vegna margháttaðra afglapa…
Margur karlinn er svo heillaður af dindlinum á sér að hann finnur sig knúinn til…