Gylfi Ægisson ætlar að kæra klámsýkina í “kynvillingagöngunni”. Það eru nú aðrir en Gylfi sem haldið hafa á lofti umræðunni um klámvæðinguna ógurlegu en það fólk sýnir kláminu í gleðigöngu hinseginfólks engan áhuga. Og nú spyr ég:
- Er klám umberanlegra eða ólíklegra til að valda skaða og misbjóða fólki ef það eru minnihlutahópar sem standa að því?
- Haldið þið að klámganga “svona fólks” (þ.e. gagnkynhneigðra miðaldra jakkafata) myndi vekja önnur og sterkari viðbrögð en klámganga hinsegin fólks?