Fyndna fólkið á Facebook

Gleðiþjálfa Kvennablaðsins finnst undarlega lítið um að notendur Fésbókarinnar viðri skemmtilegheit sín á þeim vettvangi. Hér eru samt nokkur dæmi, svona af því að það er föstudagur.

Það allra hlægilegasta sem ritstjórn rakst á í þessari viku var hugmynd prófessors Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um hugtakið verðsamráð. Vandamálið er að óljúgfróðir halda því fram að maðurinn sé ekki að grínast og því vafasamt að innleggið eigi hér heima. Við látum samt vaða.

Aðrir voru samt áreiðanlega með glettni í augum.