Breytingartillögur

671916-chrismas-balls-christmas-decoration

Ég ætla að leyfa mér að gera eftirfarandi tillögur um breytingar á jólahaldi Íslendinga.

1) Ég fékk nefnilega þá bráðsjöllu hummmmmynd að í stað þess að klæmast á harmi sjúkra, einstæðra og fátækra yfir jólin, þá tökum við Íslendingar allt árið 2005 í það að vera góð við náungann og þá einkum hungraða og hrjáða, þjakaða og þjáða. Byrja strax 1. janúar og gera 1 góðverk á dag. Ekkert endilega ógurlega stórt, bara svona að setja 50 kall í einhvern sjóð, gefa Rauða Krossinum fötin sem við notum ekki, brosa til nýbúa, passa þroskaheft barn svo foreldrarnir fái smáhvíld og solleis. Svo má t.d. ættleiða einhverja einmana ömmu og heimsækja hana á elliheimilið, ekkert endilega á jólunum heldur kannski bara 3. febrúar eða 18. ágúst. Ef manni leiðast gamalmenni má redda sér með því að borga einhverjum framhaldsskólanemum sem eru að safna fyrir útskriftarferð fyrir að sinna ömmunni. Þannig verða allir glaðir.

Svo þegar jólin koma næst, þá getum við bara notið þeirra í friði. Slappað af, eldað fínan mat, boðið fjölskyldunni í kaffi og skipst á gjöfum án þess að vera að skíta á okkur af samvikubiti yfir öllum sem eiga hvorki vini, ljósaseríu né hamborgarhrygg og geta ekki einu sinni keypt gleraugu handa börnunum sínum, hvað þá legókastala. Harmaklám verður bannnað í Ríkisútvarpinu þessa daga. Þeir sem endilega vilja armæðast yfir fólki sem á bágt geta bara runkast við það á einhverjum öðrum útvarpsstöðvum og látið okkur hin í friði.

Í alvöru talað; mér finnst voða sorglegt að svona margir eigi bágt en get því miður ekki stoppað stíðsbrölt Bandaríkjamanna eða útvegað Regnbogabörnum vini með því að þjást af samviskubiti. Það er heldur ekki mér að kenna þótt aðrir þjáist svo það er ekki einu sinni rökrétt að ég sé með sektarkennd yfir því. Ég gæti sjálfsagt kostað helling af þrælabörnum í nám með því að neita mér um nýjar nærbuxur, búa þrengra og éta meira af hrísgrjónum og minna af kjöti. Ég mun samt sem áður hér eftir sem hingað til láta mig og mína ganga fyrir og ég er hundleið á þeim armæðuprelátum sem ár eftir ár reyna að eyðileggja jólin fyrir mér með því að koma inn hjá mér vanlíðan í hvert sinn sem ég sting upp í mig konfektmola.

2) Í stað þess að jólin verði skilgreind sem hátíð barnanna, verði þau gerð að hátíð hins vinnandi manns og börnum verði kennt að bera dálitla virðingu fyrir þeim sem kosta uppeldi þeirra og skólagöngu og nota jólin til að æfa sig í umburðarlyndi, þakklæti, örlæti og öðrum góðum siðum.

Ég hitti systur mína í jólaboði hjá pabba okkar í gær og hún sagði nokkuð athyglisvert. Hún lýsti yfir efasemdum um ágæti þess að gefa börnum jólagjafir fram að fermingu eins og algengt er, og benti á að hún væri í rauninni miklu nánari systkinum sínum en börnunum þeirra. Sagði að sig langaði stundum að færa systrum sínum og vinkonum gjafir án þess endilega að gefa öllum börnunum þeirra eitthvað líka enda fengju þau sjálfsagt miklu fleiri gjafir en fullorðna fólkið. Svei mér þá ef þetta viðhorf á ekki bara rétt á sér.

Ég er ekki að leggja til að við tökum jólin frá börnunum. Að sjálfsögðu lofum við litlu krílunum okkar að taka þátt í piparkökubaksti, pakka inn jólagjöfum og heilsa jólasveininum í Kringlunni. Auðvitað setja þau líka skóinn út í glugga. Það er samt sem áður algjör óþarfi að koma inn hjá þeim þeirri hugmynd að það sé eðlilegt að jólasveinaslektið láti lýsa sig gjaldþrota í byrjun janúar þótt einhver krakkaormur hegði sér skikkanlega þessa 13 daga á ári. Ef foreldrar vilja ofdekra börnin sín gerið það þá endilega. Ykkar börn, ykkar uppeldisvandi. En vinsamlegast sýnið þá tillitssemi að spilla þeim í eigin nafni, takk fyrir og látið jólasveinana vera tákn hlýlegrar kæti og hóflegrar gjafmildi en ekki þjóna Mammóns. Það er heldur engin ástæða til að ætla að börn bíði skaða af því þótt jólin snúist ekki eingöngu um þau og þeirra óskir. Börn hafa ekkert illt af því að vera stöku sinnum spurð að því hvað þau haldi að mamma vilji að þau geri fyrir hana, hvað bróður þeirra langi að fá í jólagjöf og hvað afa finnist skemmtilegt að horfa á í sjónvarpinu en ekki bara hvað þau vilji sjálf.

Þegar hann Darri minn var 7 eða 8 ára sagði hann einu sinni við mig:
-Af hverju er alltaf sagt í útvarpinu svona asnalegt; “jólin eru hátíð barnanna” eru þau ekki fyrir alla?
Á því augnabliki fannst mér eins og einhver þáttur uppeldisins hefði bara heppnast þó nokkuð vel.

Share to Facebook

One thought on “Breytingartillögur

  1. ———————

    Torfi Stefánsson @ 27/12 14.41

    Fyrirgefðu Eva að ég skuli vera að níðast á þinni færslu til að koma hug mínum á framfæri, en þið annall-skrifarar kallið þetta yfir ykkur.
    Skrif þín um jólaklámið, að klæmast á harmi sjúkra, einstæðra og fátækra yfir jólin, fengu mig til að hugsa um prédikun biskups núna á aðfangadagskvöld. Í þau skipti sem ég hef séð hann messa á þessum degi, hefur mér fundist hann gjörsamlega misheppnaður, eins og hann getur oft átt góða spretti. Hann var stífur, uppstilltur og óeðlilegur og allt helgihaldið var óáheyrilegt, stíft og leiðinlegt. Þetta er einhver versta auglýsing fyrir þjóðkirkjuna sem hugsat getur. Á eftir kom svo “sértrúarsöfnuður” einhver, með hressilegan söng og fjör sem sannarlega kom betur út en harmagráturinn í biskupnum. Hann tók nefnilegan drjúgan tíma sinn í að tala um fátæku börnin í heiminn og hve nauðsynlegt væri að við létum aur í söfnum Hjálparstofnunarinnar.
    Mér finnst hins vegar sjálfsagt að nota jólin til að gagnrýna stíðsbrölt USA enda erum við samsek þar.

    ———————

    Sigga @ 27/12 15.34

    Segðu henni systur þinni hvernig ég leysi málin með gjafir til vinkvenna sem mér þykir vænt um án þess að gefa börnunum helling… enda eiga þær fjögur stykki af börnum hver. Ég keypti bara Makkintoss dós, pakkaði henni inn… hún var handa börnunum… og svo hengdi ég við hana lítinn sætan böggul handa vinkonunni með armbandi í. Allir ánægðir og ég fór ekki á hausinn

    ———————

    Ólöf I. Davíðsdóttir @ 27/12 15.47

    Bíddu, það hefur alveg farið framhjá mér að einnig sé gefið börnum þeirra fullorðnu sem maður gefur gjafir.

    ———————

    Eva @ 27/12 19.56

    Ég hef svosem ekki tölur um það en mér sýnist svona hjá þeim sem ég þekki að það sé t.d. algengara að fólk gefi systkinabörnum sínum gjafir en systkinum. Ég er svosem ekkert að leggja til að því verði breytt, auðvitað ræður fólk þessu bara sjálft. Ég er hins vegar efins um að það sé rétt eða gott að gefa börnum þá hugmynd að þau eigi alltaf og allsstaðar að njóta forréttinda og að allt eigi alltaf og allsstaðar að snúast um þau.

Lokað er á athugasemdir.