Af uppeldi menntskælinga

Menntskælingur tekur viðtal við glamúrbófa og allt verður vitlaust. Skólameistari biðst afsökunar og menn henda á milli sín hugmyndum um að ritskoða þurfi framhaldsskólablöð. Menn spyrja hvort börnin séu gengin af göflunum.

Jájá, krakkabörnin alast upp við fjölmiðla sem einkennast af:

-Kranablaðamennsku, þ.a. einhliða umfjöllun þar blaðamaðurinn hefur hvaða fimbulfamb sem er eftir viðmælendum sínum án þess að kafa neitt dýpra í málið.

-Viðtalablaðamennsku. Kannski er til betra orð um það í fræðunum en ég á við þá aðferð að láta fulltrúa andstæðra viðhorfa tala en kanna ekkert sannleiksgildi þess sem þeir segja. Lesandinn/áheyrandinn er skilinn eftir í lausu lofti, sem hlýtur að leiða til þess að hann myndar sér skoðun út frá því hvor viðmælandinn kemur betur fyrir, er meira aðlaðandi eða nær honum hvað varðar pólitíska sannfæringu eða jafnvel stéttarstöðu.

-Málfari sem er svo ömurlegt að maður gæti haldið að markmiðið væri að hæðast að nýbúum.

-Þeirri hugmynd að rannsóknarblaðamennska felist í því að fylgja löggunni í húsleitaraðgerðir, birta viðkvæmar persónuupplýsingar án þess að það þjóni neinum almannahagsmunum og brjóta á ýmsan annan hátt gegn friðhelgi fólks.

-Vinsældalistum þar sem mest lesnu fréttirnar eru einatt útvötnuð hneykslismál og stjörnuklám sem hefur hverfandi áhrif á líf lesenda og kemur þeim sjaldnast við.

-Glamúrvæðingu fólks sem margir sjá sem holdgervinga ofbeldis, yfirborðsmennsku, kvenfyrirlitningar og staðlaðra kynjaímynda.
Já það er von að fólk hneykslist þegar ungdómurinn gerir nákvæmlega það sem fyrir honum er haft. Rökrétta leiðin til að spyrna gegn bófadýrkun hlýtur að vera sú að takmarka ritfrelsi unglinga, allavega kemur ekki til greina að fullorðnir blaðamenn taki að sér að vera ungviðinu góð fyrirmynd. DV notar náttúrulega tækifærið til að runkast á þessu „hneyksli“ enda hafa markaðslögmálin jafnan verið sómakenndinni yfirsterkari þar á bæ og það kæmi mér ekki á óvart þótt að bleikt.is ætti einnig eftir að fjalla um málið með þeirri fagmennsku sem einkennir þann miðil.

Ég hef hinsvegar fulla trú á því að fyrr frjósi í Helvíti en að ábyrgðarmenn þessara sömu miðla læri að skammast sín fyrir ritstjórnarstefnu sína.

Share to Facebook

One thought on “Af uppeldi menntskælinga

  1. ——————————

    „Ég hef hinsvegar fulla trú á því að fyrr frjósi í Helvíti en að ábyrgðarmenn þessara sömu miðla læri að skammast sín fyrir ritstjórnarstefnu sína. “

    Nákvæmlega.

    Enda ritsjtjórnarstefnan svo sem afleiðing af froðusækni fjöldans, svo það er kannski við fleiri að sakast en ritstjórana.

    Posted by: Kristinn | 15.09.2011 | 8:58:40

    ——————————

    Frábært!

    Posted by: Ragnar Þór Pétursson | 15.09.2011 | 10:37:45

    ——————————

    Fullorðnir blaðamenn til fyrirmyndar? Áttu við að blaðamenn DV séu búnir með framhaldsskólann?

    Posted by: Gerður | 15.09.2011 | 16:02:08

    ——————————

    Hárrétt hjá þér. DV sveiflast milli þess að vera ómissandi og óþolandi. Og að þeir skuli voga sér að skrifa frétt um MR „hneykslið“ er ófyrirleitnin sjálf.

    Posted by: Þorgeir Tryggvason | 15.09.2011 | 18:04:49

    ——————————

    Þetta er stúdía í skandal um ekki neitt því mikill minnihluti þeirra sem stökkva á þetta sem hneykslunarhellu og lýsa litlu áliti sínu á vitsmunalífi menntskælinga hefur lesið viðtalið sjálft. Ágætt viðtal, laust við upphafningu meginstraumsfjölmiðlanna.

    Posted by: Hermann Stefánsson | 17.09.2011 | 13:54:04

Lokað er á athugasemdir.