Haukur er mikil félagsvera og þótt hann hafi strax tekið þá afstöðu að líta á dóminn sem launað frí til menntunar og ritstarfa í þágu Saving Iceland, og þótt hann hafi notið þeirra forréttinda að fá að valsa eftirlitslaust um borgina var hann samt feginn þegar honum var sagt að hann yrði fluttur á Skólavörðustíginn þann 13. ágúst.

Það varð þó ekkert úr því að hann yrði fluttur á Skólavörðustíginn, heldur var honum skutlað út strax þann 11. ág. Þetta virðast vera lögleg vinnubrögð því næstum allar lagagreinar um framkvæmd refsivistar innihalda klausuna “ef sérstakar aðstæður krefjast þess” og vitanlega er alltaf hægt að halda því fram að aðstæður séu sérstakar.Þann 13. ágúst var honum hent út. Það þurfti nefnilega að rýma plássið hans, ekki fyrir morðingja eða ofbeldismanni, heldur fyrir öðrum aktívista. Steinunn fór semsagt inn þennan sama dag. Mér leikur forvitni á því hvort hún hefur líka þurft að krefjast þess að fá inngöngu.

Hauki var sagt að hann yrði kallaður til að ljúka afplánun einhverntíma seinna þegar fangelsisyfirvöldum hentaði. Mér finnst með ólíkindum að það geti verið löglegt. Hann var búinn að fá sig lausan úr vinnu þessa 18 daga og varla hægt að bjóða vinnuveitanda upp á það, eftir að hann er búinn að lofa öðrum yfirvinnu í 18 daga, að svo þurfi hann að gefa frí aftur af sömu ástæðu „einhverntíma seinna“. Mitt fólk hittir lögfræðing í dag og vonandi skýrist þá réttarstaða þeirra.

 

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

54 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

54 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

54 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

54 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

54 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

54 ár ago