Hin svokölluðu skáld. Eru skáldin virkilega „svokölluð“?  Yfirskrift þessa menningarviðburðar endurspeglar þá hugmynd að hefðbundinn kveðskapur sé harla lítils metinn, gott ef ekki fyrirlitinn.

Ég held nú reyndar að almenningur sé frekar jákvæður gagnvart hefðbundnum kveðskap og það séu einkum tveir mjög litlir hópar sem leggja lítið upp úr listrænu gildi bragformsins. Hugsanlega þrír hópar en ég held að sá þriðji sé ekki fordómafullur gagnvart forminu heldur bara bundinn af lögmálum markaðarins.

Aðalsteinn

Bjarki

 Mér virðast það einkum vera þeir, sem  hafa ekki þolinmæði til þess að læra þá undirstöðu sem þarf til að yrkja snoturlega, sem tala með fyrirlitningu um rím og stuðla. Hefðbundnir bragarhættir setja manni vitanlega ákveðnar skorður, rétt eins og tónlist lýtur ákveðnum reglum, en þeir sem líta á bragreglur sem vinnutæki, fremur en kúgandi kerfi, geta fundið öllu sem þeim liggur á hjarta hentugan bragarhátt. Ég á auðvitað ekki við að bundinn kveðskapur sé betri en óbundinn, þetta eru bara ólík form, en ég hef aldrei orðið þess vör að góð skáld sem yrkja óbundin ljóð, hafi þá afstöðu að hefðbundinn kveðskapur sé úreltur. Ég held því að þessi yfirskrift beri frekar vott um óöryggi okkar sem fáumst við hefðbundinn kveðskap en það að formið njóti ekki virðingar.

Eva

Davíð Þór

Í öðru lagi finnst mér svolítið bera á þeirri afstöðu meðal almennings að dægurlagatexti sé eitthvað allt annað en ljóð og það sé óþarfi að vanda textagerð. Þeir popptónlistarmenn sem hafa þessa afstöðu álíta æskilegra að skrifa sína texta hjálparlaust en að leita í smiðju þeirra sem hafa tilfinningu fyrir hljómi og hrynjandi hins bundna máls. Mér finnst þetta einkennilegt. Tónlistarmenn verja ómældum tíma til þess að þjálfa færni sína í hljóðfæraleik og semja tónlist. Þeir líta á það sem sjálfsagt mál að fá fleiri tónlistarmenn til liðs við sig og fá aðstoð við útsetningu en virðast samt sem áður álíta að textagerð krefjist engrar kunnáttu.

Sigurður kynnir dagskrána


Ég held samt að það sé ekki fyrirlitning á forminu heldur þeirra eigin tjáningarþörf sem ræður mestu þar um. Má benda á í því sambandi að Bubbi Morteins, vinsælasti tónlistarmaður sinnar kynslóðar, hefur vissulega notað sína eigin texta að mestu en hefur þó bæði lagt það á sig að læra undirstöðu í bragfræði og þegið ráðgjöf sem tvímælalaust hefur bætt textagerð hans. Mættu aðrir taka það sér til fyrirmyndar.

Snæbjörn

Sigrún


Í þriðja lagi er mér sagt að útgefendur hafi jafnan þá afstöðu að hefðbundnir bragarhættir sómi sér ef til vill á hagyrðingamótum en eigi lítið skylt við þá hámenningu sem þeir telji sig vera að þjóna. Ég þekki ekki hlutfall þeirra handrita sem forlögin fá af hefðbundnum kveðskap á móti handritum af órímuðum ljóðum en bókaforlög hljóta að hafa það markmið eins og  önnur fyrirtæki að koma út í gróða og staðreyn din er sú að ljóð seljast yfirleitt illa svo mér finnst það nú nærtækari skýring en sú að þau hafi lítið álit á forminu.

Theresa

Valdimar

Ljóðabækur seljast illa og af því draga margir þá ályktun að ljóðið sé dautt. Það held ég að sé hin mesta firra. Ljóðabækur hafa ekki notið verulegra vinsælda síðan grammófónninn varð almenningseign en þeir sem lesa ekki ljóð syngja nú samt, svo þótt fáar ljóðabækur prýði metsölulista þá selst kveðskapur samt ágætlega í tengslum við tónlist.

Örlygur

Þórunn

Ljóðið hefur líklega aldrei verið sérlega sterkt sem sjálfstæð listgrein. Ljóðið þarf tónlist, leikhús eða upplestur til að öðlast líf. Og það er ekkert einstakt fyrir ljóðið að þurfa stuðning annarra listgreina. Megnið af allri popptónlist styðst við texta og þó hvarflar það ekki að nokkrum manni að tónlistin sé dauð.

Sé það rétt að útgefendur álíti að ljóðelskandi Íslendingar vilji ekki lesa kvæði undir hefðbundnum bragarháttum hljóta þeir að hafa endurskoðað þá afstöðu sína eftir að Bjarki Karlsson fékk Tómasinn. Hin bráðskemmtilega bók hans Árleysi alda var á metsölulistum í tíu vikur, hún hefur nú selst í mörg þúsund eintökum og höfðar jafnt til almúgans sem lærðustu fræðimanna. Ljóðið er nefnilega ekki dautt og allra síst þau kvæði sem styðjast við bragreglur. Þvert á móti brúar hið hefðbundna nútímaljóð bilið milli svokallaðrar „hámenningar“ og „lágmenningar“. Allir sem hafa gaman af ljóðlist ættu því að fá eitthvað við sitt hæfi á þessari ljóðadagskrá sem ber yfirskriftina Hin svokölluðu skáld og fer fram í Háskólabíó núna á laugardaginn Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast þeim nýju straumum sem nú renna í gömlum farvegi og ég hvet alla ljóðaunnendur til að tryggja sér miða.

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

54 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

54 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

54 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

54 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

54 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

54 ár ago