Sonur minn er á 17. ári og hefur tekið sína gelgju út með því að hlusta á tónlist sem er mér ekki að skapi. Það finnst mér miklu betri kostur en að hann brjótist til sjálfstæðis með því að nota vímuefni og umgangast fólk sem ekki er til þess hæft að lífa í samfélagi manna. Því hef ég tekið því brosandi þegar hann fer á dauðarokktónleika í Hinu Húsinu. Hitt Húsið mun enda fylgja þeirri stefnu til hins ítrasta að banna vímuefnanotkun á staðnum enda er aldurstakmark á slíka tónleika 16 ára.

Ég er nú svona almennt frekar umburðarlynd gagnvart smekk annarra og hef ekki litið á það sem neitt sérstaklega mannskemmandi reynslu að hlusta á dauðarokk, þótt ég hafi sjálf takmarkað þol gegn þeim óhljóðum sem framin eru í nafni þeirrar einkennilegu tónlistarstefnu. Boðskapur textanna er reyndar oftast langt frá því að vera uppbyggilegur en þar sem raddbeiting „söngvaranna“ veldur því yfirleitt að textinn heyrist ekki hvort sem er og boðskapurinn er sjaldnast studdur rökum sem viti borið fólk tekur mark á, hef ég kosið að líta svo á að syni mínum sé sáralítil hætta búin af því að sækja tónleika af þessu tagi.

Það runnu þó á mig tvær grímur þegar hann sagði mér frá tónleikum sem hann fór á rétt fyrir páska. Sennilega hefur textasmið hljómsveitarinnar ekki tekist að koma skoðunum sínum á framfæri með orðum einum saman og hljómsveitinni ekki tekist að auka áhrifin með orgum og óhljóðum, því til að undirstrika boðskapinn, skáru hljómsveitarmeðlimir hold sitt og hver annars með rakvélarblöðum á meðan á tónlistarflutningi stóð. Lagaði blóð úr sárum og ýrðist á tónleikagesti og áður en yfir lauk féll söngvarinn í öngvit af blóðmissi og var fluttur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans.

Ég dreg það mjög í efa að nokkur maður gangi svo nærri sjálfum sér án þess að vímuefni séu í spilinu og mér finnst það harla einkennileg stefna hjá Hinu Húsinu að láta gjörninga af þessu tagi viðgangast fyrir framan 16 ára unglinga. Mér finnst það sjálfsagt mál að starfsmenn taki í taumana ef fólk á þess vegum tekur upp á því að skaða sjálft sig á sviði, tel það einfaldlega ábyrgðarhluta að gera það ekki. Af tvennu illu er ég ekki frá því að ég vilji frekar að sonur minn verði vitni að kannabisreykingum en uppákomum af þessu tagi. Það er allavega ekki hætta á lifrarbólgusmiti eða öðru því verra ef hassreykur berst í vit hans eða í sár. Ég er stórhneyksluð og mun ekki leggja blessun mína yfir það að sonur minn sæki tónleika í Hinu Húsinu framvegis, það hlýtur að vera hægt að finna annan vettvang þar sem ungt fólk skemmtir sér án vímuefna.

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

54 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

54 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

54 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

54 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

54 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

54 ár ago