Maður sem að mati sálfræðings þarf margra ára meðferð til þess að nokkur von sé um að hann láti af því athæfi sínu að eiga kynmök við krakka, fær „hátt í 70 sálfræðiviðtöl“ á þremur árum. Eftir að hafa barist fyrir því sjálfur. Er svo sleppt út í samfélagið án þess að nokkurt mat hafi verið lagt á árangurinn af þeirri meðferð. Reyndar fékk hann víst blað með upplýsingum um afleiðingar kynferðislegar misnotkunar þannig að þetta átti nú svosem allt að vera á hreinu.

Ég legg til að sama aðferðafræði verði tekin upp allstaðar í heilbrigðiskerfinu. Krabbameinssjúkir fái t.d. meðferð upp á eina klukkustund á mánuði. Þeir geta svo unnið heimaverkefni þess á milli. Eins verði fólki með smitsjúkdóma útveguð öll úrræði sem tíðkast en tíma og fé heilbrigðiskerfisins verði hins vegar ekki varið til þess að meta árangurinn. Þannig yrði maður með lifrarbólgu að sjálfsögðu meðhöndlaður en að lokinni lyfjameðferð fengi hann bara að sprengja í einhverja kerlingu án þess að gengið væri úr skugga um smithættu. Item sting ég upp á því að allir hættulegir ofbeldismenn og morðingjar fái blað með upplýsingum um það hvað getur gerst ef maður lemur einhvern í hausinn með þungu barefli. Það er dýrt að hafa þessa menn í fangelsi og með slíku blaði væri hægt að spara alveg helling.

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

54 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

54 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

54 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

54 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

54 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

54 ár ago