Ég styð allar aðgerðir gegn Baugsveldinu

Auglýsendum DV hótað með válista?

Mér finnst með ólíkindum hvað margir láta eins og Baugsfeðgar séu fórnarlömb eineltis. Skilur fólk ekkert hvað er að gerast hérna?

Það sem þessir menn eru búnir að gera okkur, er ekkert ósvipað því þegar ofbeldismenn kúga konur. Skúrkurinn gerir konuna háða sér, með því að gera út á veikleika hennar. Hann gefur henni fíkniefni, veitir henni ‘vernd’, og sér henni fyrir fæði og húsnæði. Áður en hún veit af, hefur hann ægivald yfir henni. Hann gætir þess að hún kynnist ekki öðrum mönnum. Hann tekur lán og setur hana á það sem ábyrgðarmann, falsar undirskriftina hennar og þegar það fellur er það hún sem þarf að borga. Hún þarf að vinna eins og skepna til að standa undir greiðslum en  hún þorir ekki að fara frá honum, alveg sama hve illa hann kemur fram við hana, því hún trúir því að hún geti ekki lifað án hans.

Samband íslenskra fátælinga við Bónusmafíuna er svipað. Þeir gáfu okkur kost á lægra vöruverði og okkur líkaði það vel. Við urðum háð þeim og fórum að trúa því að Bónus væri bjargvættur okkar. Við tókum ekki eftir því að um leið og baunadósin lækkaði í verði, sviptu þeir okkur tækifærum til að fara út í sjálfstæðan rekstur og gerðu allt sem þeir gátu til að hindra að við versluðum annarsstaðar. Þeir stjórnuðu viðskiptalífinu og stjórnmálaflokkunum, höfðu áhrif á lagasetningu og þeir stjórnuðu fjölmiðlunum.  Á sama tíma og þeir gáfu okkur mjólkina, lugu þeir því að okkur að verðlausu fyrirtækin sem þeir keyptu og seldu sjálfum sér og vinum sínum, væru skrilljóna virði. Einhvernveginn tókst þeim að koma því svo fyrir að þegar þeir urðu gjaldþrota, lentu skuldirnar á okkur.

Svo þegar einhver kemur og reynir að stöðva hrottann og leiða konunni það fyrir sjónir að hún er í ofbeldissambandi, þá bara sekkur hún í afneitun og heldur því fram að enginn annar geti séð til þess að hún svelti ekki.

Ég styð þessa aðgerð gegn fyrirtækjum sem verlsa við DV. Ég mun ekki kaupa það blað, auglýsa í því, senda því fréttatilkynningar eða veita því nokkrar upplýsingar á meðan það er í eigu mafíunnar. Ég styð allar aðgerðir gegn Baugsveldinu.

admin

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

54 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

54 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

54 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

54 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

54 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

54 ár ago