Hvar er forvarnaálfurinn þegar fyrirséð er að þurfi loka eina staðnum á höfuðborgarsvæðinu þar sem reiðir ungir tónlistarmenn geta stundað áhugamál sem veldur ekki öðrum skaða en heyrnarskemmdum? Stað þar sem aðrir borgarar verða ekki fyrir ónæði af af þeirri háværu starfsemi sem þar fer fram? Eina staðnum þar sem hægt hefur verið að bjóða því fólki á aldrinum 17-22ja ára sem er hvað líklegast til ýmisskonar áhættuhegðunar aðstæður til að halda og sækja vímuefnalausa tónleika?

Í Tónlistarþróunarmiðstöðinni er framin tónlist sem ég þekki ekki, skil ekki, fíla ekki, hlusta ekki á og ætla aldrei að hlusta á. Tónlist sem viðkvæmasta fólkið í viðkvæmasta aldurshópnum hefur eignað sér. Djöflagangurinn sem fram fer í TÞM er ekki bara einhver bóla heldur heill menningarkimi sem krefst ákveðinna aðstæðna sem eru hvergi annarsstaðar fyrir hendi, allavega ekki í Reykjavík. Setjum sem svo að á Íslandi væri aðeins eitt hús þar sem hægt væri að spila fótbolta án þess að það leiddi til borgarastyrjaldar. Dytti nokkrum heilvita manni í hug að ríki og sveitarfélögum bæri ekki siðferðileg skylda til að halda því gangandi?

Hvað ætla menn að gera til að koma í veg fyrir að ca 50 fokreiðar hávaðahljómsveitir komi sér fyrir í illa einöngruðum bílskúrum í íbúðahverfum? Segja þeim að fara bara að spila fótbolta í staðinn? Eða reyna að komast inn í Synfó? Einhverjir ungu tónlistarmannanna munu eflaust valda nágrönnum sínum ómældum taugatirtingi ef TÞM verður lokað en sennilega fá ekkert allar þessar hljómsveitir húsnæði. Einhverjir munu einfaldlega finna sköpunarþrá sinni aðra útrás. Það verður ekki í gegnum KFUM.

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

54 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

54 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

54 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

54 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

54 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

54 ár ago