Mér er öll þessi samúð með harðstjóranum, stríðsglæpamanninum og morðingjanum Saddam Hussein, gjörsamlega óskiljanleg. Og af hverju ættu múslímar að syrgja þennan viðbjóð? Nú heyrast raddir sem vilja hefja karlinn upp til skýjanna sem einhverja hetju fyrir yfirvegaða framkomu þegar hann var leiddur að gálganum. Ég hef engan heyrt dást að yfirvegun hans þegar hann lét kúga, pína og myrða saklaust fólk.

Það er auðvitað skandall að hann skuli hafa verið tekinn af lífi. Ég get ekki séð neitt sem réttlætir dauðarefsingar enda þjóna þær engum tilgangi öðrum en pólitískum og þegar aftaka er greinilega liður í viðleitni stórveldis til að leggja undir sig meira af heimsbyggðinni, drottna, kúga og arðræna, er rökrétt að reiðast.

En að gera ógeðið að píslarvætti út á það, það finnst mér flippað.

Á hverju ári er fólk tekið af lífi fyrir miklu minni sakir en viðbjóðurinn Saddam Hussein. Samkvæmt Amnesty International, voru 2148 manns líflátnir samkvæmt dómi í 22 ríkjum árið 2005. Þótt fáir Íslendingar lýsi opinberlega yfir hrifningu á dauðarefsingum fer heldur ekki mikið fyrir mótmælum eða einu sinni verulegu svekkelsi af okkar hálfu yfir öllum þessum löglegu morðum. En nú þegar þessi karlfauskur, sem hefði átt miklu verra skilið en að deyja, er líflátinn, stendur íslenskur almúgi á öndinni af hneykslun og stjórnmálamenn, biskupinn og bloggarar keppast við að fordæma aftökuna. Flest fólk sem lætur sig engu varða þótt aðrir morðingjar eða meintir morðingjar séu sviptir lífi.

Ég sé ekki að mál Saddams sé neitt sorglegra eða meira sjokkerandi en hvert annað morð sem framið er í skjóli valdsins. Ef Íslendingar væru í alvöru hneykslaðir á dauðarefsingum myndu þeir slíta öllu samstarfi við þau ríki sem leyfa þær en ekki bara fussa heima í eldhúsi.

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

54 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

54 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

54 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

54 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

54 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

54 ár ago