Categories: Andóf og yfirvald

Álrænt fling

Ég hef alltaf verið svolítið svag fyrir íróníu. Það vantar góða íslenska þýðingu á það orð því íslenska orðið kaldhæðni nær aðeins litlum hluta þess sem telst írónía. Ég held þó að sé óhætt að ganga svo langt að kalla það kaldhæðni þegar Björgólfur fær hvatningarverðlaun fyrir að kaupa sér tónlistarmenn og þegar Baugur fær útflutningsverðlaun.

Ég held að ég hafi þokkalegt þol gagnvart íróníu en það kemur þó fyrir að kalhæðnin fer yfir þröskuld þess sem málvitund mín getur fellt í þann flokk. Ég hef kosið að kalla það aluminumískt, sem gengur fram úr því að vera írónískt.

Einhverju sinni varð mér það á að særa mann sem mér þótti vænt um. Það var ekki af illum hug en engu að síður hafði ég gert stór mistök sem var engin augljós leið til að bæta fyrir. Sættir án uppgjörs er hugmynd sem einfaldlega gengur ekki upp svo í slíkum tilvikum, þegar ekki er hægt að bæta skaðann eða gleyma því sem gerðist, er bara tvennt í boði, iðrun og fyrirgefning eða þá vinslit. Ég þurfti á fyrirgefningu hans að halda og bað um hana. Fékk ekkert svar en þegar ég ynnti hann eftir því, sagðist hann ekki ætla að svara þessu, því hann vildi leyfa mér að eiga síðasta orðið. Það fannst mér álrænt.

Útrásar FL-ingið tengist bæði Landsbankanum og Glitni og svo var það Kappa Fling-Fling sjálfur sem passaði upp á Fl-ingið á hlutabréfamarkaðnum. Það er eitthvað álrænt við þetta fling.

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

54 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

54 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

54 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

54 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

54 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

54 ár ago