Margir fjölmiðlar, þeirra á meðal ríkissjónvarpið og ruv.is, hafa í dag birt fréttir af njósnum manns nokkurs um aðra manneskju sem áður var honum nátengd. Ef til vill spinnst af þessu einhver umræða um hvenær fjölmiðlar eigi að nafngreina fólk í svona málum. Um það ætti að gilda sú einfalda regla að það sé aðeins gert ef augljósir almannahagsmunir krefjist þess.
Það verður sjálfsagt reynt að teygja og toga skilgreiningarnar á almannahagsmunum, og eitthvert fjölmiðlafólk mun þykjast geta réttlætt þetta með einhverjum rökum.
En þetta er ekki flókið mál. Það er mjög varasamt að banna fjölmiðlum með lögum að birta svona fréttir. Þetta á ekki að vera ólöglegt. En þetta er viðbjóðslega siðlaus fréttaflutningur, og þá sem bera ábyrgð á honum á tvímælalaust að sækja til saka í dómstól almenningsálitsins.