Sagði satt fyrir landsdómi

Sá sögulegi atburður hefur átt sér stað að vitni sagði satt fyrir landsdómi.

Var vitnið, Hrútur Hrappsson, feðraveldisfulltrúi, spurt um þátt klámvæðingarinnar í aðdraganda hrunsins. Skýrði Hrútur skilmerkilega frá því að Fjármálaeftirlitið hefði, án útboðs, keypt upp lager af grímubúningum og öðrum dónaskap af klámbúllu í eigu frænda eins manns.

Þegar vitnið var krafið um skýringar á tiltæki sínu, kvað það þessa óvenjulegu sannleiksást vera „sjálfsprottna í einhverju lýðræðisflippi“.  Baðst Hrútur þegar í stað afsökunar á framburði sínum.

„Það var ekki ætlunin að særa neinn. Ég var bara í krúttkasti, þú’st, búinn að liggja yfir Pedobear með sleikjó og svona og datt í hug að sannleikurinn yrði dáldið skondið sjónarhorn í umræðuna. Ef það hefur sært eitthvunn þá segi ég bara sorrý,“

 

Hrútur Hrappsson í krúttkasti
Myndin er sviðssett

Eva Hauksdóttir

Share
Published by
Eva Hauksdóttir
Tags: Landsdómur

Recent Posts

Fyndna fólkið á Facebook

Gleðiþjálfa Kvennablaðsins finnst undarlega lítið um að notendur Fésbókarinnar viðri skemmtilegheit sín á þeim vettvangi.…

57 ár ago

Skemmtilegheit vikunnar

Gleðiþjálfi Kvennablaðsins tók púls á þjóðarsálinni á Fésbókinni þessa vikuna og valdi sín uppáhalds innlegg…

57 ár ago

Fimmtudagssalat

Á mínu heimili borðum við venjulega frekar þungan mat um helgar og fáum okkur sætabrauð…

57 ár ago

Höllin sem svaf

Þyrnirósarævintýrið hefur verið mér hugleikið síðustu vikur. Það er nefnilega eitt atriði í þeirri sögu…

57 ár ago

Páskabröns

Hér eru nokkrar einfaldar og skemmtilegar hugmyndir sem sóma sér vel á morgunverðarborðinu um páska.…

57 ár ago

Að heimsfaraldri loknum

Í einhverjum skilningi erum við að upplifa heimsendi. Við munum ekki öll deyja (nema Bubbi)…

57 ár ago