Categories: Dindilhosan

Páskabröns

Hér eru nokkrar einfaldar og skemmtilegar hugmyndir sem sóma sér vel á morgunverðarborðinu um páska. Það besta er að þær útheimta mjög litla fyrirhöfn en gleðja börn óskaplega mikið.

Það er ekki mikil fyrirhöfn að skella í amerískar pönnukökur og varla hægt að finna einfaldara föndur en þetta hérakrútt. Hafa bara í huga þegar maður steikir að pönnsurar eiga að vera misstórar. Dindillinn getur verið sletta af sýrðum rjóma eða rjómaosti. „Hashbrowns kartöflur“, rifinn ost eða gróft kókosmjöl má nota til að fá loðna áferð eins og hér er gert en það er ekkert nauðsynlegt og það er einfaldara að nota kotasælu til þess. Hún er líka mjög góð með pönnukökum og sýrópi.

Þeir sem eru flinkir og metnaðargjarnir geta líka látið hérann snúa fram …

… og til hvers skapaði Guð eiginlega banana ef ekki til að nota þá sem héraeyru?

Það er miklu skemmtilegra að borða eggin þegar þau eru með andlit og sérstaklega ef andlitið minnir á páskaunga. Hörfræ eða önnur lítil fræ verða augu og gogginn má skera úr gulrót, ferskju eða appelsínuberki. (Það má leifa berkinum.)

Með egginu fær maður svo ristað brauð og þá er líka upplagt að nota hérahugmyndina. Ef brönsinn er borinn fram dagana fyrir páskadag og börnin farið að lengja eftir páskaeggi má slá á sælgætisþörfina með því að smyrja nutella á ristaða brauðið. En þá passar nú betur að dindillinn sé úr ávaxtabita en eggi.

Fallegur þeytingur úr ávöxtum og jógúrt eða skyri er heppilegur til sukkjöfnunar. Bananar og melónur gefa mjög ljósan, gulan lit en ef maður vill hafa þeytinginn páskagulan hentar ananas vel. Ferskjur og mangó má nota til að gera bananaþeyting gulari. Plaströr eru hræðileg fyrir umhverfið svo við mælum með því að þau séu þvegin úr heitu saltvatni og endurnýtt.

Spælt egg verður páskaungi með nánast engri fyrirhöfn. Mesta vinnan er að þvo rifjárnið sem er notað til að rífa smá gulrótarbút fyrir klær.

Og ef við bjóðum upp á egg og beikon þá getur spæleggið orðið páskahéri. Ef maður á ekki graslauk eða steinseljustlka til að nota sem veiðihár þá bara sleppum við þeim. Barnið mun ekki kvarta nema það hafi séð myndina.

 

 

 

 

 

 

 

 

Eva Hauksdóttir

Share
Published by
Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Fyndna fólkið á Facebook

Gleðiþjálfa Kvennablaðsins finnst undarlega lítið um að notendur Fésbókarinnar viðri skemmtilegheit sín á þeim vettvangi.…

57 ár ago

Skemmtilegheit vikunnar

Gleðiþjálfi Kvennablaðsins tók púls á þjóðarsálinni á Fésbókinni þessa vikuna og valdi sín uppáhalds innlegg…

57 ár ago

Fimmtudagssalat

Á mínu heimili borðum við venjulega frekar þungan mat um helgar og fáum okkur sætabrauð…

57 ár ago

Höllin sem svaf

Þyrnirósarævintýrið hefur verið mér hugleikið síðustu vikur. Það er nefnilega eitt atriði í þeirri sögu…

57 ár ago

Að heimsfaraldri loknum

Í einhverjum skilningi erum við að upplifa heimsendi. Við munum ekki öll deyja (nema Bubbi)…

57 ár ago

Að klæmast á sænsku

Ég man nú ekki hvernig það kom til en í gær fór ég að velta…

57 ár ago