Á mínu heimili borðum við venjulega frekar þungan mat um helgar og fáum okkur sætabrauð með morgunkaffinu. Án þess að hafa tekið meðvitaða sukkjöfnunarstefnu borðum við venjulega frekar létta máltíð á fimmtudagskvöldum, oft er það salat ásamt köldum kjúklingi, túnfiski og eggi, maískólfi, baunum eða hummus. Það er alger misskilningur að maður verði ekki saddur af slíkri máltíð en matgoggar fá sér þá bara brauð með.

Salatið á myndinni var á borðum í lok janúar. Það samanstendur af kjúklingabringu sem ég marineraði í teriyaki, steikti og skar niður kalda. Það er mikilvægt að ofelda ekki kjúlingabringur en ef þær eru rétt eldaðar passa þær sérlega vel með salati.

Í kóvíðinu reynir maður að komast hjá því að fara í búð fyrr en allt er orðið galtómt. Við höfum keypt mjólk í sólarhringssjoppu þar sem er engin umferð á næturnar og smithætta því í lágmarki. Við erum frekar vel sett í bili eftir stórinnkaup á mánudag og því tilvalið að hafa salat í kvöld. Ég reikna ekki með að það verði til mikið ferskt grænmeti eða ávextir í lok mánaðarins en markmiðið er að reyna að komast hjá því að kaupa annað en mjólk fyrr en um mánaðamót. Sumt af því sem er á diskinum á myndinni eigum við ekki núna en salatið á heldur ekkert að vera alltaf eins.

Þessa vikuna verður hummus í stað kjúklings. Það er ekki til melóna eða vínber en við eigum epli. Við eigum ekki lárperur en við eigum ferskan mozzarella og tómata sem ég hálfþurrka í ofni. Venjulega höfum við kalda sósu úr jógúrt eða sýrðum rjóma með kjúklingi og túnfiski, en mér finnst ekki þörf á því þegar við erum með hummus.

Hálfþurrkaðir tómatar

Háfþurrkaðir tómatar eru frábært meðlæti og passa sérstaklega vel með fetaosti eða ferskum mozzarella og svörtum ólívum. Þetta er líka góð aðferð til að geyma tómata ef maður hefur keypt mikið af þeim.

Ég sker tómatana í tvennt eða í báta ef þeir eru stórir, skef kjarnana með teskeið ofan í glerkrukku og geymi, til að nota þá í tómatsósu eða súpu síðar (það er hægt að frysta þá), strái smá salti yfir tómatana, pensla ofnplötu með ólívuolíu og raða bátunum á hana. Svo þurrka ég þá í blástursofni við 140-150 °C í ca 2 og hálfa klst. Getur verið aðeins minna eða meira eftir stærð, og eftir því hversu mikla þurrkun maður vill. Best er að tékka á þeim eftir 2 tíma til öryggis.

Það er hægt að þurrka tómatana án þess að fjarlægja hlaupið en þá tekur lengri tíma að þurrka þá og mér finnst þeir ekkert betri þannig. Tómatarnir eru svo geymdir í glerkrukku í kæli. Ef maður reiknar með að geyma þá lengi er gott að hella olíu yfir þá og auðvitað má setja hvítlauk og kryddjurtir í krukkuna.

Eva Hauksdóttir

Share
Published by
Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Fyndna fólkið á Facebook

Gleðiþjálfa Kvennablaðsins finnst undarlega lítið um að notendur Fésbókarinnar viðri skemmtilegheit sín á þeim vettvangi.…

57 ár ago

Skemmtilegheit vikunnar

Gleðiþjálfi Kvennablaðsins tók púls á þjóðarsálinni á Fésbókinni þessa vikuna og valdi sín uppáhalds innlegg…

57 ár ago

Höllin sem svaf

Þyrnirósarævintýrið hefur verið mér hugleikið síðustu vikur. Það er nefnilega eitt atriði í þeirri sögu…

57 ár ago

Páskabröns

Hér eru nokkrar einfaldar og skemmtilegar hugmyndir sem sóma sér vel á morgunverðarborðinu um páska.…

57 ár ago

Að heimsfaraldri loknum

Í einhverjum skilningi erum við að upplifa heimsendi. Við munum ekki öll deyja (nema Bubbi)…

57 ár ago

Að klæmast á sænsku

Ég man nú ekki hvernig það kom til en í gær fór ég að velta…

57 ár ago