Kókópöffssmyglarar gripnir glóðvolgir

Klámvarnardeild lögreglunnar á Tálkafirði kom upp um stórfellt smygl á ólöglegu kókópöffsi á 8. tímanum í gærkvöld. Það var klámvæðingarklúbbur 6. bekkjar grunnskólans á staðnum, Andsetnir englar sem stóð að smyglinu.

„Þetta er náttúrulega bara stjórnlaust. Hreinlega gegnsósa af þráa eftir langvarandi neyslu efnisins, en á meðan við fáum ekki forvirkar rannsóknarheimildir, getum við lítið gert annað en að handtaka þá, lemja þá og stinga þeim í steininn“ sagði ráðskona klámvarnardeildar lögreglunnar í samtali við Pistliinn. Baddi búmm, talsmaður Andsetnu englanna hafnar ásökunum lögreglunnar með öllu. „Við ætluðum bara að fá okkur eitthvað gott í gogginn og þar sem klámvæðingarfrostpinnarnir voru farnir að þrána, vildum við frekar kókópöffs.“

Starfsemi skipulagðra glæpasamtaka færist í vöxt á Íslandi. Sem kunnugt er eru nú á bilinu 11,0- 11,09  ofbeldisklúbbar starfandi á landinu, þar af 0,7 á Tálknafirði. Talið er að allt að fimm meðlimir tilheyri hverjum þeirra og sumir jafnvel fleiri en einum samtökum í senn. Helstu viðfangsefni gengjanna eru skipulagning grímudansleikja og dreifing ólöglegs kókópöffs.

Víst er talið að hið þráaverjandi morgunkorn, kókópöffs, eigi uppruna sinn hjá Satni sjálfum. Á uppvaxtartíma kaldastríðskynslóðarinnar voru kúlurnar hrímaðar með hvítu efni og í kjölfarið upphófst mikið pönk og ofbeldismenning sem aldrei hafði áður þekktst í hinum vestræna heimi. Hvíta efnið var bannað snemma á níunda áratugnum en kúlurnar sjálfar voru þó áfram löglegar og ekkert lát varð á pönkinu. Leiddi viðstöðulaust kókópöffsát pönkaranna á endanum til svokallaðra kúlulána sem áttu stóran þátt í efnahagshruninu.

Líklegt er talið að þessi andsetni engill hafi ætlað að nota kókópöffsið við  afbrigðilegar klámathafnir en eins og sjá má á myndinni er hann grímuklæddur og skekur í óþráavörðum ofstopa sínum hið þríeina reðurtákn; merki feðraveldisins, klámvæðingarinnar og markaðsaflanna.

Eva Hauksdóttir

Share
Published by
Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Fyndna fólkið á Facebook

Gleðiþjálfa Kvennablaðsins finnst undarlega lítið um að notendur Fésbókarinnar viðri skemmtilegheit sín á þeim vettvangi.…

57 ár ago

Skemmtilegheit vikunnar

Gleðiþjálfi Kvennablaðsins tók púls á þjóðarsálinni á Fésbókinni þessa vikuna og valdi sín uppáhalds innlegg…

57 ár ago

Fimmtudagssalat

Á mínu heimili borðum við venjulega frekar þungan mat um helgar og fáum okkur sætabrauð…

57 ár ago

Höllin sem svaf

Þyrnirósarævintýrið hefur verið mér hugleikið síðustu vikur. Það er nefnilega eitt atriði í þeirri sögu…

57 ár ago

Páskabröns

Hér eru nokkrar einfaldar og skemmtilegar hugmyndir sem sóma sér vel á morgunverðarborðinu um páska.…

57 ár ago

Að heimsfaraldri loknum

Í einhverjum skilningi erum við að upplifa heimsendi. Við munum ekki öll deyja (nema Bubbi)…

57 ár ago