Regnbogabörn baka handa LÍÚ

Frá píslargöngu LÍÚ

Regnbogabörn og ömmur þeirra hafa lýst yfir samúð sinni með LÍÚ en sem kunnugt er hefur sambandið sætt miklu einelti af hálfu almennings um langt árabil.

„Við vorum búin að baka skrilljón Gyðingakökur handa kallagreyjunum og ætluðum að færa þeim eftir píslargönguna þeirra á föstudaginn en löggan kom og gasaði okkur öll“ sagði Hallfríður Guðjónsdóttir, regnbogaamma, í samtali við Pistilinn.  Aðspurður hvort aðgerðir lögreglu teldust  ekki fullharkalegar, sagði Stefán Smári Þórisson, yfirmaður heilsuvarnardeildar lögreglunnar að aðgerðinni hefði síður en svo verið beint gegn málstaðnum.

„Þetta snýst bara um heilbrigðissjónarmið. Maður veit ekkert hvar þessar hornasir og ömmur þeirra hafa verið með lúkurnar og ekki vert að láta þetta eitra fyrir ofsóttasta minnihlutahópi samfélagsins“ sagði Stefán Smári og bætti því við að hver sá sem sæist reyna að selja kókópöffs útí í frímó, mætti eiga von á svipuðum aðgerðum.

Þess má geta að grátkór LÍÚ hlaut barlóminn í söngvakeppni blóraböggla á föstudaginn langa, með laginu „The Winner Takes it All“. Í öðru sæti var Ofnýtingarflokkurinn sem flutti „Fools Rush In“ í tilefni nýrrar rammaáætlunar sem að sögn talsmanns flokksins er mega kúl og næstum eins sexý og kvótakerfið.

Eva Hauksdóttir

Share
Published by
Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Fyndna fólkið á Facebook

Gleðiþjálfa Kvennablaðsins finnst undarlega lítið um að notendur Fésbókarinnar viðri skemmtilegheit sín á þeim vettvangi.…

57 ár ago

Skemmtilegheit vikunnar

Gleðiþjálfi Kvennablaðsins tók púls á þjóðarsálinni á Fésbókinni þessa vikuna og valdi sín uppáhalds innlegg…

57 ár ago

Fimmtudagssalat

Á mínu heimili borðum við venjulega frekar þungan mat um helgar og fáum okkur sætabrauð…

57 ár ago

Höllin sem svaf

Þyrnirósarævintýrið hefur verið mér hugleikið síðustu vikur. Það er nefnilega eitt atriði í þeirri sögu…

57 ár ago

Páskabröns

Hér eru nokkrar einfaldar og skemmtilegar hugmyndir sem sóma sér vel á morgunverðarborðinu um páska.…

57 ár ago

Að heimsfaraldri loknum

Í einhverjum skilningi erum við að upplifa heimsendi. Við munum ekki öll deyja (nema Bubbi)…

57 ár ago