Nýyrðasmíð er áhugaverð, skemmtileg, góð. Nýir tímar kalla á ný orð og það er gaman að auðga málið með góðum nýyrðum, vel heppnuðum tökuorðum og endurvinnslu á úreltum orðum.
Það gladdi því viðkvæma málkennd mína þegar ég sá hið dásamlega orð langtímabúsetuúrræði, notað í frétt um aðstæður heimilislausra. Hversvegna að nota jafn fábreyttan orðaforða og húsnæði, dvalarstaður, híbýli, vistarvera, heimili, skjólshús, bústaður, íverustaður, gististaður og athvarf, þegar mögulegt er að nota hið stórkostlega vanmetna orð úrræði?
Ég legg til að sett verði á laggirnar svokölluð úrræðanefnd og verði hlutverk hennar að finna og útbreiða ýmis málfarsúrræði með áherslu á lausnir annarsvegar og úrræði hinsvegar. Úrræðanefnd gæti lagfært ýmsar ambögur og sett úrræðalausnir í staðinn. Greiðslufrestur yrði þannig frestunarúrræði, fæðingar yrðu barneignalausnir, brandari yrði spaugsemisúrræði og brauðrist yrði ristabrauðslausn.
Helst þyrfti úrræðanefnd að bjóða upp á heildrænar máfarslausnir með heildstæðum nýyrðaúrræðum.
Gleðiþjálfa Kvennablaðsins finnst undarlega lítið um að notendur Fésbókarinnar viðri skemmtilegheit sín á þeim vettvangi.…
Gleðiþjálfi Kvennablaðsins tók púls á þjóðarsálinni á Fésbókinni þessa vikuna og valdi sín uppáhalds innlegg…
Á mínu heimili borðum við venjulega frekar þungan mat um helgar og fáum okkur sætabrauð…
Þyrnirósarævintýrið hefur verið mér hugleikið síðustu vikur. Það er nefnilega eitt atriði í þeirri sögu…
Hér eru nokkrar einfaldar og skemmtilegar hugmyndir sem sóma sér vel á morgunverðarborðinu um páska.…
Í einhverjum skilningi erum við að upplifa heimsendi. Við munum ekki öll deyja (nema Bubbi)…