Íslenskir ostar eru skyldari tyggjói en osti

Ég gerði mér ekki grein fyrir því fyrr en ég flutti til útlanda hvers konar drasl íslenskir brauðostar eru.  Ostur er reyndar rangnefni, þeir eiga meira skylt við gúmmí. Og nei, ég er ekki að tala um gerviost sem er seldur sem pizzuálegg heldur þetta rusl sem er kallað brauðostur, góðostur, skólaostur gauda o.s.frv.

Prófið að bræða íslenskan ost. Hann klessist við hnífapörin eins og soðið tyggjó. Hann eyðileggur uppþvottabursta. Og hann er ekki einu sinni bragðgóður. Láttu þér aldrei detta í hug að setja brauðost út í sósuna, ef þú ætlar að nota ost í sósu notaðu þá rjómaost, brie eða útlenska osta, annars fer allt kvöldið í það að þrífa pottinn.

Sennilega finnst mörgum Íslendingum þetta myndband  hér að neðan ótrúverðugt. Ég veit reyndar um konu sem reyndi þetta með íslenskum skólaosti og bölvaði myndbandinu í sand og ösku á meðan hún hamaðist á pönnunni. Fékk sér svo ristað brauð með smjöri því auðvitað varð engin ostasamloka úr þeirri tilraun, heldur aðeins uppþvottaslys.

En þetta er ekkert svindl. Ef maður er með alvöruost virkar þetta bara mjög vel. Það er hægt að fá almennilegan, breskan Cheddar á Íslandi, Cathedreal í rauðum pakkningum og ég mæli með honum. Tek fram að þetta er ekki kostuð kynning, ég veit bara ekki um neinn annan ost sem er fáanlegur á Íslandi sem er hægt að steikja á pönnu en ábendingar eru vel þegnar.

Hugsanlega koma aðrir ostar til greina en ekki reyna þetta með osti sem er ekki hægt að mylja. Ef hann er gúmmíkenndur þá klessist hann bara við pönnuna.

Ég mæli reyndar með því að strjúka brauðsneiðarnar (þá hlið sem á ekki að grillast) með hvítlauk og/eða ferskum chili-pipar og smyrja svo með rjómaosti og setja paprikusneið á milli en nota Cheddar ostinn aðeins utan á samlokuna. Þeir sem borða kjöt setja að sjálfsögðu grillað beikon inn í samlokuna, hvort sem notaður er Cheddar eða rjómaostur.

Eva Hauksdóttir

Share
Published by
Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Fyndna fólkið á Facebook

Gleðiþjálfa Kvennablaðsins finnst undarlega lítið um að notendur Fésbókarinnar viðri skemmtilegheit sín á þeim vettvangi.…

57 ár ago

Skemmtilegheit vikunnar

Gleðiþjálfi Kvennablaðsins tók púls á þjóðarsálinni á Fésbókinni þessa vikuna og valdi sín uppáhalds innlegg…

57 ár ago

Fimmtudagssalat

Á mínu heimili borðum við venjulega frekar þungan mat um helgar og fáum okkur sætabrauð…

57 ár ago

Höllin sem svaf

Þyrnirósarævintýrið hefur verið mér hugleikið síðustu vikur. Það er nefnilega eitt atriði í þeirri sögu…

57 ár ago

Páskabröns

Hér eru nokkrar einfaldar og skemmtilegar hugmyndir sem sóma sér vel á morgunverðarborðinu um páska.…

57 ár ago

Að heimsfaraldri loknum

Í einhverjum skilningi erum við að upplifa heimsendi. Við munum ekki öll deyja (nema Bubbi)…

57 ár ago