Kvennablaðið leitar að sálmaskáldi því sem svo orti og aðrar upplýsingar um þennan sálm, Himnasíminn, eru einnig vel þegnar. Mér skilst að hann hafi verið sunginn við sama laga og Fósturlandsins freyja en síðasta lína hvers erindis með tilbrigði.

Nú er náðartími,
notum hann sem ber.
Hér er himnasími
handa mér og þér.
Og hann kostar ekkert,
opinn dag og nótt.
Komist þú í kröggur,
kalla þá í símann fljótt!

Kór:
Nú er náðartími,
notum hann sem ber.
Hér er himnasími,
handa mér og þér.
Góður Guð oss hefir
gefið síma þann,
og við sjálfan Jesúm
oft vér tölum gegnum hann.

Móti von og vilja
verði símaslit,
þú skalt það ei dylja
það er ekkert vit.
Bilun þá að bæta
bið þú Guð í trú,
að við æðri veröld
aftur samband fáir þú.

Tímans tönn ei nagað
traustan síma fær,
svo er honum hagað,
hann þér yndi ljær.
Ef þú í hann talar
óðar færðu svar,
af því að hann liggur
upp til himna-miðstöðvar!

Einnig birt hér

Eva Hauksdóttir

Share
Published by
Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Fyndna fólkið á Facebook

Gleðiþjálfa Kvennablaðsins finnst undarlega lítið um að notendur Fésbókarinnar viðri skemmtilegheit sín á þeim vettvangi.…

57 ár ago

Skemmtilegheit vikunnar

Gleðiþjálfi Kvennablaðsins tók púls á þjóðarsálinni á Fésbókinni þessa vikuna og valdi sín uppáhalds innlegg…

57 ár ago

Fimmtudagssalat

Á mínu heimili borðum við venjulega frekar þungan mat um helgar og fáum okkur sætabrauð…

57 ár ago

Höllin sem svaf

Þyrnirósarævintýrið hefur verið mér hugleikið síðustu vikur. Það er nefnilega eitt atriði í þeirri sögu…

57 ár ago

Páskabröns

Hér eru nokkrar einfaldar og skemmtilegar hugmyndir sem sóma sér vel á morgunverðarborðinu um páska.…

57 ár ago

Að heimsfaraldri loknum

Í einhverjum skilningi erum við að upplifa heimsendi. Við munum ekki öll deyja (nema Bubbi)…

57 ár ago