Ég vissi ekki fyrr en las þessa frétt að  þeir sem ríkisvaldið hefur svipt sjálfræði væru látnir bera kostnaðinn af því sjálfir. Þannig þarf sjálfræðissvipt manneskja á örorkubótum, sem með öllum uppbótum verður hæst 218.515  kr á mánuði (fyrir skatt), að greiða lögráðamanni sínum 12.000 kr á tímann fyrir að taka ákvarðanir varðandi fjármál, búsetu og aðra persónulega hagi.

Líklega er hugsunin sú að samfélagið eigi ekki að þurfa að líða fyrir það að fólk kunni ekki að hegða sér.  Sú hugmynd er djúprætt, það hefur til dæmis löngum þótt sjálfsagt að láta fanga leggja eitthvað af mörkum til eigin refsingar. Jesús var látinn draga krossinn upp á hæðina. Þeir sem brenndir voru fyrir galdur á 15.-17. öld þurftu sjálfir, með aðstoð fjölskyldu sinnar, að útvega eldivið í bálköstinn. Fangarnir voru sjálfir þvingaðir til að reisa girðinguna í kringum fangabúðirnar í Auscwhitz.

Á sama hátt þykir það viðeigandi á Íslandi, árið 2014, að fólk sem ekki er fært um að bera ábyrgð á sjálfu sér, axli ábyrgðina á því sjálft.

Finnst ykkur þetta í lagi?

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

54 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

54 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

54 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

54 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

54 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

54 ár ago