Síðasta miðvikudag sagði ég frá netsamfélögum sem líta á átröskun sem lífsstíl. Á sama hátt eru til netsamfélög ungmenna sem álíta það eðlilega aðferð til að takast á við tilfinningar, að skera sig, brenna, hárreyta sjálfan sig eða skaða á annan hátt. Sjálfssköðun virðist mun útbreiddari meðal stúlkna en pilta. Sumir telja þó að piltar feli áverka betur og skaði sig frekar með höggum en eggvopnum sem geri þeim auðveldara að skálda upp skýringar.
Það sem helst greinir Ana-stúlkur frá Kötturum er að Ana-stúlkan er að reyna að stjórna útliti sínu en Köttarinn er hinsvegar að reyna að stjórna tilfinningum sínum eða yfirfæra sálrænar þjáningar á líkamann. Í báðum tilvikum gildir þó að flestir sem tileinka sér þessa hegðun hafa ranga og neikvæða sjálfsmynd og að einn stærsti áhættuþátturinn er félagsskapur þar sem þessi hegðun er upphafin.
Vefsamfélög þeirra sem skera sig minna þó einnig um margt á Pro-Ana síður. Rétt eins og á Pro-Ana síðunum æpa þversagnirnar á mann. Varað er við hegðun sem á sama tíma er upphafin. Notendur lýsa fyrirlitningu á þeim sem skaða sig til þess að verða sér úti um athygli en birta svo myndir af eigin áverkunum og gefa stundum dramatískar lýsingar á kvöl þess sem þjáist í leynum. Talað er um sjálfssköðun sem aðferð til að vinna á andlegum þjáningum en um leið virðast margir á barmi örvæntingar og þrá það helst að komist upp um þá.
Einnig er að finna á þessum síðum góð ráð til að leyna áverkum. Það augljósa ráð að klæða þá af sér er ekki alltaf nothæft því það vekur athygli í sjálfu sér að klæðast flíkum með síðum ermum og skálmum í steikjandi hita. Það getur því að mati ráðgjafanna verið áhrifaríkara að nota armbönd eða úr, því þótt þau feli ekki úlnliði dragi þau athyglina frá örum og áverkum. Mælt er með að stúlkur með ljót ör klæðist þunnum mussum ef heitt er í veðri og stundum er hægt að fela ör með líkamsskreytingum svo sem húðflúri eða að teikna eða skrifa á líkama sinn.
Snjallast þykir þó að skera sem minnst í sýnilegustu svæði líkamans en velja frekar innanverð læri og upphandleggi. Þá þykir gott ráð að skera sig í sturtu til þess að leyna blóðinu fyrir mömmu og pabba.
Athyglissýki eða eitthvað annað?
Þegar mamma áttaði sig á þessu tók hún strax þá afstöðu að ég væri að biðja um hjálp. En ég var ekkert að biðja um hjálp enda hefði ég þá ekki falið þetta svona vel. Ég þóttist einfaldlega hafa fundið aðferð til að díla við ástarsorg sem ég komst ekki yfir og var kannski merki um þunglyndi. Það er einmitt út af þessu sem krakkar fela þetta, af því að fullorðna fólkið misskilur það hversvegna þau skera sig.
Til þess að gefa lesendum betri innsýn í hugarheim unglinga sem skaða sig hafði ég upp á nokkrum íslenskum ungmennum sem skaða sig. Frásagnir þeirra verða birtar í Kvennablaðinu á næstunni.
Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…
Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…
Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…
Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…
Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…
Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…