„Mamma – hvernig væri heimurinn ef kommúnismi væri ekki til?“

Ég er með hugmynd að sjónvarpsþætti sem væri vel við hæfi að sýna í barnatíma RÚV.

Barn á grunnskólaaldri spyr foreldra sína og kennara; „hvernig væri heimurinn ef kommúnismi væri ekki til?“  Fullorðna fólkið upplýsir barnið um að heimurinn væri þá eitt stórt alræðisríki þar sem hugmyndin um manngildi væri ekki til, flestir lifðu við sárafátækt, þrælkaðir í þágu auðvaldsins og bæru númer í stað nafna.

Er nokkur ástæða til annars en að ríkið innprenti börnum þá hugmynd að allar tækniframfarir og allar hugmyndir um frelsi, mannúð og jöfnuð séu kommúnismanum að þakka, án þess að nefna það einu orði að reyndar hafi margháttuð kúgun og viðbjóður þrifist í nafni kommúnisma?

Þetta sjónvarpsefni þyrfti ekki einu sinni að kosta neitt, það eina sem þyrfti að gera væri að talsetja þetta myndskeið upp á nýtt og nota orðið kommúnismi í stað kristindóms.

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

54 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

54 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

54 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

54 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

54 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

54 ár ago