Löggan er með mann í fullu starfi við að hanga á facebook. Í fullu starfi, auk þess sem 12 til viðbótar sinna síðunni í hjáverkum. Eruði ekki að djóka? Hvernig getur það verið fullt starf að uppfæra snjáldursíðu 3-5 sinnum á dag og svara 1-2 fyrirspurnum? Og hvernig getur stofnun sem segist vera undirmönnuð réttlætt slíka notkun á starfskrafti?
“Almannavarnir” facebook-löggunnar ná ekki til almennings
Allir geta skoðað logreglan.is, hringt í lögguna eða sent tölvupóst. Facebook síðan hvetur e.t.v. til þess að almenningur hafi samband en hún breytir engu um aðgengi almennings að löggunni, sem hefur lengi verið mjög gott. Því síður gegnir síðan almannavarnahlutverki, því til þess að netnotandi sjái innlegg lögreglunnar án þess að bera sig sérstaklega eftir því þarf að uppfylla þrjú skilyrði.
Titill Kastljóssfréttarinnar sem ég tengdi á hér að ofan, “37.000 góðvinir lögreglunnar” er mjög villandi. Titillinn á að staðfesta gífurlegar vinsældir fb-síðunnar en 37.000 aðdáendur merkja bara alls ekki að 37.000 manns fylgist með því sem fer fram á síðunni. Jón Gnarr á 66.000 aðdáendur á fb og Hugleikur Dagsson 31.000. Dettur einhverjum í hug að allir sem læka síðu einu sinni fylgist almennilega með henni?
Hvaða almannavarnir er svo að finna á síðunni?
Ennþá hlægilegri verða hugmyndir um að facebookhangs löggunnar sé hluti af almannavörnum þegar maður skoðar það sem fram fer á meintri almannavarnasíðu. Lítum á upphaf umræðuþráða á venjulegum degi í lífi facebooklöggunnar:
19. feb
Þetta er ósköp dæmigerður dagur. Ég tók saman yfirlit yfir innlegg sem spanna 14 daga frá miðjum febrúar. Auðvitað þyrfti miklu lengri tíma til að fá áreiðanlegar niðurstöður um það hvernig þessi síða er notuð en tvær vikur gefa þó einhverja vísbendingu. Í mars er hátt hlutfall ófærðarfrétta.
Lögreglan deilir einstaka glæpafrétt (sem fjölmiðlar birta hvort sem er) en megnið af færslum eru almennar ábendingar um að gæta að öryggi og sýna tillitssemi. Já og tónlistarmyndbönd og annað léttmeti frá almenningi. Almannavarnatengt efni hverfur í kraðakið.
Er þá ekkert gagn að þessu fyrir almenning?
Facebooksíða löggunnar skiptir sennilega fáa máli nema persónulega vini lögreglumanna. Og þó; við sjáum spurningar frá notendum varðandi lög, reglur og verklag. Löggan getur ekki svarað öllum þessum spurningum en hefur staðið sig vel í því að benda fólki á hvert það eigi að snúa sér. Almenningi gætu þótt þessar spurningar áhugaverðar en gallinn er sá að það er mjög erfitt að leita að svörum á facebook. Ef maður sér ekki þráðinn samdægurs eru allar líkur á að maður missi af honum. Það er mun gagnlegra fyrir almenning að spurningum sé svarað á þessum ágæta vef.
Þessi krúttlega mynd hér að ofan er meðal þeirra sem löggan hefur birt á fb. Löggan í heimsókn hjá Barnaspítala Hringsins. Mikið hlýtur Ísland að vera huggulegur Kardimommubær. En vitiði hvað, þetta er sama trix og mótorhjólaklíkur nota til að bæta ímynd sína. Nei ég er ekki að segja að löggan sé ótínt glæpagengi heldur að benda á að ímyndarsköpun segir ekkert um eðli stofnunarinnar
Hver er hinn raunverulegi tilgangur?
Enginn sér lögguna á facebook nema óska sérstaklega eftir því. Þeir sem taka þátt í umræðum virðast aðallega vera persónulegir vinir löggunnar. Svo hver er tilgangurinn? Ímyndarsköpun – augljóslega. Eitthvað meira?
Það skal enginn segja mér að stofnun sem grætur hástöfum yfir fjársvelti og manneklu, setji mann í fullt starf við að taka þátt í tónlistarupplifun kunningja sinna og minna einmitt það fólk sem mestan áhuga hefur á störfum lögreglunnar á að nota endurskinsmerki.
Og hvað er undirmönnuð lögregla að gera á facebook allan daginn? Fylgjast með þessum 200.000 sem eru skráðir í gagnagrunninn? Varla eru þeir að spila “slotomania” í vinnutímanum en það er ekki fullt starf að uppfæra fb síðu nokkrum sinnum á dag og nei, þið skuluð ekki segja mér að löggan sé marga klukkutíma á dag að svara einkaskilaboðum.
Einhverjum tilgangi hlýtur þetta nethangs þeirra að þjóna. Hvernig væri að blaðamenn leituðu skýringa á því, í stað þess að gapa upp í forsvarsmenn lögreglunnar eins og ástfangnir unglingar og gleypa gagnrýnislaust við gaspri þeirra um að lögregla annarra ríkja taki þá til fyrirmyndar? Í alvöru talað, þetta er ekki boðlegur fréttaflutningur.
Þessu tengt: Þessvegna þarf lögreglan i-pad
Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…
Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…
Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…
Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…
Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…
Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…