Áhugaverð leið? Er ekki allt í lagi?

Það er eftir öðru hjá þessu blessaða fólki sem þykist vera að stjórna landinu að líta á það sem lausn að eyða upp lífeyrissparnaðinum.

Af hverju var aftur verið að hvetja okkur til viðbótarsparnaðar? Hvernig hljómuðu auglýsingarnar?

Nei, það er ekki lausn að eyða lífeyrisparnaðinum í að greiða fyrir sukk og svínarí nokkurra gróðapunga. Tökum þennan sparnað endilega út, því miðað við framlag stjórnvalda til kreppunnar getum við alveg eins reiknað með að þessir sjóðir verði gerðir upptækir og þeir koma okkur þá ekki að neinu gagni í ellinni. Tökum peningana út, en látum okkur ekki detta í hug að verja þeim til að greiða skuldir við ríki og banka. Notum þá frekar til að kaupa góða frystikistu og fylla hana af mat; helst mat sem er keyptur beint af bóndanum og bakaranum.  Eða gefum þá fólki sem á ekki fyrir nauðþurftum.

Notum þessa peninga bara alls ekki til að greiða skuldir og skatta. Þvert á móti skulum við hætta að borga, jafnvel þótt við getum það. Allsherjar greiðsluverkfall mun lama samfélagið á örfáum vikum (skatturinn af lífeyrissparnaðinum kemur aðeins einu sinni inn) og þegar svo er komið á ríkisstjórnin ekki annarra kosta völ en að ganga að þeim kröfum sem almenn samstaða næst um, hvort sem það eru afsagnir embættismanna og ráðherra, afnám verðtryggingar á lán eða eitthvað annað.

Það er ekki áhugaverð leið að eyða lífeyrissparnaðinum sínum í að greiða okurvexti. Það er hinsvegar áhugaverð leið að nýta sér skuldsetningu sína til að kúga þessa drulluhala til sanngirni.

Skattur af sparnaði strax í vasa ríkisins
admin

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

55 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

55 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

55 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

55 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

55 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

55 ár ago