Var Framsókn að plata nýbúa?

Þann 22. maí síðastliðinn stóð framboðslisti Framsóknar og flugvallarvina í  Reykjavík fyrir nýbúakvöldi að Suðurlandsbraut 24.

Samkvæmt heimildamanni Kvennablaðins, sem hefur tekið þátt í starfi framboðslista Framsóknar og flugvallarvina, stóð til að upplýsa nýbúana um framkvæmd utankjörstaðaratkvæðagreiðslu, aka þeim í Laugardalshöll til að kjósa, og gefa þeim svo veitingar þegar þeir kæmu til baka með atkvæði sín í umslagi.

Oddviti listans virðist hafa ákveðið að upplýsa um afstöðu sína í moskulóðarmálinu strax eftir nýbúafundinn og mun sumum þeirra sem höfðu setið fundinn brugðið illilega í brún þegar þeim varð ljóst að framboðslistinn sem hafði boðið þeim fræðslu, akstur og veitingar, hafði einnig á óopinberri stefnuskrá sinni að koma í veg fyrir að moska yrði reist í Reykjavík. Þær fyrirætlanir voru ekki kynntar á fundinum.

Þessi færsla birtist á FB vegg oddvita Framsóknar í Reykjavík að morgni 22. maí

 

Þessi færsla birtist svo á vegg oddvitans seint sama kvöld í framhaldi af nýbúafundinum.

Samkvæmt  65. grein laga um sveitarstjórnarskosningar er gert ráð fyrir þeim möguleika að kjósandi sem kosið hefur utan kjörfundar mæti einnig á kjörstað. Ef það gerist ógildist utankjörfundaratkvæðið. Ef kjósandi sem hefur kosið utan kjörfundar skiptir um skoðun, getur hann þannig ógilt utankjörfundaratkvæði sitt og gefið það einhverjum öðrum lista, eða skilað auðu bara með því að mæta á kjörstað.

 

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

54 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

54 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

54 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

54 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

54 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

54 ár ago