Categories: Allt efni

Útskrifuð

Við erum rétt komin úr Hrísey, þar sem við vorum síðustu viku, flesta dagana í skítakulda.

Í dag er 24. júní og enginn smá heiður að útskrifast á sjálfum Þórudeginum. Hjarta mitt svellur af stolti yfir þessari tengingu. Hér með er ég semsagt formlega útskrifuð sem lögfræðingur. Kláraði dæmið utanskóla og á þremur árum — átti allt eins von á að þurfa að fresta útskrift en gott frí á Krít gerði gæfumuninn. Ég er að reyna að telja sjálfri mér trú um að þetta sé geðveikur árangur hjá mér. Mér þætti það örugglega ef einhver annar ætti í hlut.

Nú þarf ég bara að fá vinnu og ML gráðu og Hdl próf og helling af reynslu og þá get ég farið að sparka í yfirvaldið.

Ég mætti ekki við útskriftina. Þekki ekki fólkið í deildinni og langar ekki að halda upp á þetta að öðru leyti en því að Einar er búinn að setja kampavín í kæli. Tvær konur, stærðfræðingar frá Bandaríkjunum í verða í mat hjá okkur.

Það sem af er júní hef ég verið að passa Kvennablaðið fyrir Steinu og er ekkert farin að leita mér að lögfræðiverkefnum fyrir alvöru, hef bara nefnt það við þá sem ég þekki að ég sé laus. Ætti eiginlega að vera að lesa lögfræði á fullu til að undirbúa næsta vetur en hef ekki haft mig í það.

Ég fæ ekki svar um skólastyrk fyrr en í júlí, veit ekki hvort það verður þann 1. eða 31., sennilega einhversstaðar þar á milli. Finnst ponkulítið óþægilegt að vita ekki alveg hvort ég verð í námi í Glasgow eða á Íslandi næsta vetur. Í augnablikinu hlakka ég ekki einu sinni til þess að byrja.

 

Deila færslunni

Eva Hauksdóttir

Share
Published by
Eva Hauksdóttir

Recent Posts

320 dögum síðar

Benjamin Julian tók myndina Sennilega hefur mér aldrei orðið minna úr verki en árið 2018.…

54 ár ago

Góðra vina fundur

Mér finnst þessi mynd svo táknræn. Katrín Jakobsdóttir í snertifæri við bæði Theresu May og Erdoğan.…

54 ár ago

Fjórum mánuðum síðar

Í dag er ársfjórðungur síðan fréttist að bandamenn okkar í Nató hefðu drepið Hauk í…

54 ár ago

My Reply to Turks’ Hatemail

Dear Erdoğan worshippers who have been sending me hate mail Do you really think that…

54 ár ago

Svar mitt við haturspóstum Tyrkja

Originally published in English Kæru Erdoğandýrkendur sem hafið sent mér haturspósta Haldið þið virkilega að…

54 ár ago

Yfirlýsing vegna fánabrennu

Kallað hefur verið eftir skýringum á því tiltæki að brenna tyrkneska fánann framan við Utanríkisráðuneytið…

54 ár ago