Allt efni

Jesúbarnið tosar í tillann

Fjölskyldan helga, eftir Paolo Veronese (1528–1588)

Fórum á safn í dag og sáum urmul af hrikalega ófríðum englum, heilögum meyjum og öðru fólki sem hefði þurft á fótósjoppu að halda.

Það eftirminnilegasta er þessi mynd. Ég minnist þess ekki að hafa áður séð mynd af Jésúbarninu toga í tillann á sér. Þótt hann hljóti að hafa gert það eins og önnur sveinbörn.

Sá sköllótti sem gónir upp í klofið á barninu er Jósep, strákurinn sem er að þefa af tánum á Jésússi litla er Jóhannes skírari (væntanlega 6 mánaða) ljóshærða konan er heilög Barbara (sem fæddist 300 árum síðar) og dökkhærða stelpan er jómfrú María.

Ég er að fatta það fyrst núna að María er eitthvað að eiga við brjóstið á sér. Þetta er sennilega klámvæðing en ekki helgimynd.

Uppfært: Þessi mynd var fjarlægð af FB þar sem hún þótti of klámfengin. Þegar ég benti á að þetta væri klassískt listaverk var færslan birt aftur. Mig langar rosalega að vita hver klagaði þetta. Þetta er ekkert í fyrsta eða annað sinn sem álíka efni sem ég birti hefur verið tilkynnt.

Deila færslunni

Eva Hauksdóttir

Share
Published by
Eva Hauksdóttir

Recent Posts

320 dögum síðar

Benjamin Julian tók myndina Sennilega hefur mér aldrei orðið minna úr verki en árið 2018.…

54 ár ago

Góðra vina fundur

Mér finnst þessi mynd svo táknræn. Katrín Jakobsdóttir í snertifæri við bæði Theresu May og Erdoğan.…

54 ár ago

Fjórum mánuðum síðar

Í dag er ársfjórðungur síðan fréttist að bandamenn okkar í Nató hefðu drepið Hauk í…

54 ár ago

My Reply to Turks’ Hatemail

Dear Erdoğan worshippers who have been sending me hate mail Do you really think that…

54 ár ago

Svar mitt við haturspóstum Tyrkja

Originally published in English Kæru Erdoğandýrkendur sem hafið sent mér haturspósta Haldið þið virkilega að…

54 ár ago

Yfirlýsing vegna fánabrennu

Kallað hefur verið eftir skýringum á því tiltæki að brenna tyrkneska fánann framan við Utanríkisráðuneytið…

54 ár ago