Á morgun, sunnudag, ætlar Mikael Torfason að tala við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í þætti sínum Mín skoðun á Stöð 2. Það gæti orðið áhugavert, enda er Mikael í þeirri lykilstöðu að vera aðalritstjóri frétta á 365 miðlum, öðrum þeirra tveggja fjölmiðla sem minnisblaði úr innanríkisráðuneytinu var lekið til í nóvember. Sá leki hefur verið viðfangsefni lögreglurannsóknar síðastliðinn mánuð, eftir að ríkissaksóknari hafði rannsakað málið í tvo mánuði og kveðið upp úr um að gera þyrfti sakamálarannsókn.
Fréttastofa Mikaels hefur að vísu ekki staðið fyrir mikilli fréttamennsku um þetta stórmál, og það þótt hún hafi fengið minnisblaðið fyrst fjölmiðla (ásamt Mogganum), og viti þannig væntanlega hvaða leið það barst úr ráðuneytinu.
En, ég ætla að leyfa mér að vera vongóður, og trúa því að á morgun geri Mikael bragarbót á þessu og spyrji þeirra sjálfsögðu, og óþægilegu, spurninga sem sérhver metnaðarfull fréttamanneskja myndi spyrja ráðherra sem sætti sakamálarannsókn vegna gruns um alvarlegt hegningarlagabrot. Til að hjálpa Mikael svolítið í þessu (af því að undirmenn hans virðast hafa verið svo tregir til þess hingað til) ætla ég telja upp nokkrar af þessum spurningum sem það væri nánast glæpsamlegt að krefja Hönnu Birnu ekki svara um á morgun:
- Það er komið í ljós að í ráðuneytinu er til skjal sem er nánast samhljóða minnisblaðinu sem var lekið. Hvað áttirðu við þegar þú sagðir að í ráðuneytinu væri ekki til neitt sambærilegt skjal við minnisblaðið?
- (Ef Hanna Birna neitar þessari staðhæfingu): Ertu að halda því fram að minnisblaðið sem lekið var í fjölmiðla (og sem þér hefur verið sent afrit af), sé ekki nokkurn veginn samhljóða neinu skjali sem til er í ráðuneytinu, þótt haft hafi verið eftir heimildarmönnum innan ráðuneytisins að slíkt skjal sé þar til, og sé á málaskrá?
- Af hverju vékst þú ekki tímabundið þegar ríkissaksóknari ákvað, eftir eigin rannsókn, að láta fara fram lögreglurannsókn á hendur þér og undirmönnum þínum?
- Hvernig á almenningur að geta treyst því að rannsóknin fari fram með eðlilegum hætti þegar þeir sem bera ábyrgð á henni eiga starf sitt undir þér, eins og t.d. lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, sem þú getur rekið hvenær sem er, auk þess sem skipunartími hans rennur út á kjörtímabilinu og þá á hann framhaldsráðningu undir þér?
- Af hverju hélstu því fram að ekki væri um að ræða sakamálarannsókn þegar ríkissaksóknari lagði fyrir lögreglu að gera slíka rannsókn?
- Af hverju hélstu því fram að rannsókn ríkissaksóknara væri meðal annars að undirlagi ráðuneytisins?
- Af hverju komst þú ekki í veg fyrir að Tony Omos, sem var rægður við fjölmiðla í þessu minnisblaði, sem allt bendir til að hafi verið viljandi lekið úr ráðuneytinu, væri vísað úr landi, í skjóli myrkurs, án þess að haft væri samband við lögmann hans, og án þess þú værir búin að úrskurða í máli hans sem var enn til meðferðar hjá ráðuneytinu?