Frekja að vilja fatla umræðuna

Sögnin að fatlast hefur nokkrar merkingar, þar á meðal að forfallast (fatlast frá verki) og að skaðast eða meiðast.  Það er væntanlega það sem Vigdís Finnbogadóttir átti við þegar hún sagði að RÚV hefði fatlast svolítið.  Að orðið þýði líka að missa einhverja hæfni sem venjuleg er meðal fólks gerir ekki að verkum að orðið geti ekki lengur haft hinar merkingarnar, auk þess sem það getur með engu móti verið niðrandi fyrir fatlað fólk að talað sé um að stofnanir fatlist.

Það er þess vegna hrein og klár frekja að ætlast til að fólk hætti að nota þetta orð öðru vísi en sjálfskipuðum rétttrúnaðarlöggum þykir við hæfi.  Fatlað fólk getur verið frekjur eins og annað fólk, og það er hið besta mál.  Það er hins vegar vont ef svoleiðis frekjum tekst að fatla umræðuna með þeirri frekju sinni.
einar

Recent Posts

Veiran leggst á fréttafólk á furðulegan hátt

Veira gengur nú ljósum logum um heimsbyggðina og veldur ýmiss konar usla og hörmungum. Hún…

55 ár ago

Kóvitar, sérfræðingar og óvitar

Það er best að taka fyrst fram eftirfarandi: Ég hef enga sérfræðiþekkingu á faraldursfræði, veirufræði…

55 ár ago

Um breytingar á nálgunarbannslögunum – og skilvirka leið til að tryggja frið

Opið bréf til þingmanna Sæl, þið sem flytjið tillögu um breytingar á nálgunarbannslögunum (meira…)

55 ár ago

Eru Píratar kerfisflokkur?

Borgarfulltrúi Sósíalistflokksins, Sanna Magdalena Mörtudóttir, lýsti því yfir í gær að hún hygðist ekki taka…

55 ár ago

Of margar konur í borgarstjórn?

Í borgarstjórnarkosningunum um helgina náðu fimmtán konur og átta karlar kjöri. Konurnar eru því 65%…

55 ár ago

Hvaða þingmaður fær þrjá nýja bíla?

Sá þingmaður sem mest fékk greitt fyrir aksturskostnað í fyrra fékk 4.621.144 krónur, fyrir að…

55 ár ago