Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrum alþingismaður og núverandi flokksstjórnarmeðlimur í Samfylkingunni, skrifaði pistil um stjórnarskrármálið á Eyjuna í gær. Þar reynir hún að verja afstöðu formanns Samfylkingarinnar í málinu, en hann vildi sem kunnugt er „semja“ við Sjálfstæðis- og Framsóknarflokk um að málinu yrði haldið áfram á næsta þingi, fremur en að afgreiða það fyrir þinglok í vor.
Þórunn heldur fram sömu rökum, eða öllu heldur rökleysu, í málinu og Árni, nefnilega að þingsályktunartillaga á þessu þingi myndi binda hendur næsta þings. Þetta er svo augljóslega rangt að það þarf ekki einu sinni að ræða það, því næsta þing getur gert það sem því sýnist í málinu, og til dæmis samþykkt nýja og gagnstæða þingsályktun. Það er til vansa að manneskja sem þekkir þessa hluti jafnvel og Þórunn reyni með þessum hætti að slá ryki í augu almennings, að því er virðist í þeim tilgangi að þjóna hagsmunum þeirra afturhaldsafla sem vilja allar teljandi breytingar á stjórnarskrá feigar.
Málþófið verður ekki stöðvað með 71.gr. bæði vegna þess að skilyrði greinarinnar eru ekki uppfyllt og vegna þess að það samræmist ekki gildum jafnaðarmanna.
Veira gengur nú ljósum logum um heimsbyggðina og veldur ýmiss konar usla og hörmungum. Hún…
Það er best að taka fyrst fram eftirfarandi: Ég hef enga sérfræðiþekkingu á faraldursfræði, veirufræði…
Opið bréf til þingmanna Sæl, þið sem flytjið tillögu um breytingar á nálgunarbannslögunum (meira…)
Borgarfulltrúi Sósíalistflokksins, Sanna Magdalena Mörtudóttir, lýsti því yfir í gær að hún hygðist ekki taka…
Í borgarstjórnarkosningunum um helgina náðu fimmtán konur og átta karlar kjöri. Konurnar eru því 65%…
Sá þingmaður sem mest fékk greitt fyrir aksturskostnað í fyrra fékk 4.621.144 krónur, fyrir að…