(Það er búið að segja þetta mörg hundruð sinnum, en það virðist ekki nægja …)
Eftir því sem ég best veit hefur eftirfarandi margendurteknu staðhæfingum ekki verið mótmælt:
Í stuttu máli starfa hrægammarnir sem eiga bankana í skjóli ríkisins, sem fyrst seldi þeim húsnæðislán á brunaútsölu, og nú horfir aðgerðalaust á hvernig þeir mergsjúga skuldara, meðal annars í krafti mikillar verðbólgu frá hruni, og verðtryggingar sem ríkisstjórnin neitar að hrófla við.
Augljóst virðist að hér hafi eitthvað farið illilega úrskeiðis. Hver ber ábyrgð á því, og af hverju er ekkert gert í málinu?
Mikill fjöldi þeirra sem skulda þessi húsnæðislán er að kikna undan þeim, eða hefur að minnsta kosti tapað ævisparnaðinum og sér fram á að eyða áratugum í að borga niður stórhækkaðan höfuðstól.
Á þetta hefur ríkisstjórnin horft í bráðum þrjú ár, og þrátt fyrir gríðarlega óánægju meðal almennings heldur hún áfram að svara út í hött. Nú síðast var það Oddný Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sem rakti allt það sem ríkisstjórnin væri að gera, án þess að nefna neitt sem ástæða er til að ætla að leysi nema örlítinn hluta vandans, hvað þá að það fjarlægi sjálft meinið.
Eins og systurflokkurinn í ríkisstjórn, VG, hefur þetta fólk lært sína lexíu, en hjá vitlausum lærimeistara. Nefnilega hjá Maríu Antoinette, sem ráðlagði fólkinu að borða bara kökur úr því að það ætti ekki brauð.
Veira gengur nú ljósum logum um heimsbyggðina og veldur ýmiss konar usla og hörmungum. Hún…
Það er best að taka fyrst fram eftirfarandi: Ég hef enga sérfræðiþekkingu á faraldursfræði, veirufræði…
Opið bréf til þingmanna Sæl, þið sem flytjið tillögu um breytingar á nálgunarbannslögunum (meira…)
Borgarfulltrúi Sósíalistflokksins, Sanna Magdalena Mörtudóttir, lýsti því yfir í gær að hún hygðist ekki taka…
Í borgarstjórnarkosningunum um helgina náðu fimmtán konur og átta karlar kjöri. Konurnar eru því 65%…
Sá þingmaður sem mest fékk greitt fyrir aksturskostnað í fyrra fékk 4.621.144 krónur, fyrir að…