Bankarnir fengu húsnæðislán með gífurlegum afslætti, en nota þau til að blóðmjólka fólk sem enga ábyrgð ber á hruninu. Þeir eiga mikinn fjölda fyrirtækja í landinu, og engin leið virðist vera að koma í veg fyrir að þeir misnoti það. Þeir afskrifa hundruð milljarða af lánum fjárglæframannna sem settu landið á hausinn og efnahag tugþúsunda í uppnám eða kaldakol.
Ríkisstjórnin biður bankana kurteislega um að vera ekki svona vonda, og bankastjórarnir glotta í laumi. Bankastjóri Landsbankans heimtar að bankinn sé einka(vina?)væddur í snatri. Eigendur hinna bankanna eru óþekktir kröfuhafar. Hvaða kröfur áttu þeir í bankana? Af hverju fengu þeir ekki bara að tapa þessum áhættufjárfestingum sínum þegar bankarnir fóru á hliðina?
Af hverju hættum við ekki þessu rugli og þjóðnýtum bankana?
Veira gengur nú ljósum logum um heimsbyggðina og veldur ýmiss konar usla og hörmungum. Hún…
Það er best að taka fyrst fram eftirfarandi: Ég hef enga sérfræðiþekkingu á faraldursfræði, veirufræði…
Opið bréf til þingmanna Sæl, þið sem flytjið tillögu um breytingar á nálgunarbannslögunum (meira…)
Borgarfulltrúi Sósíalistflokksins, Sanna Magdalena Mörtudóttir, lýsti því yfir í gær að hún hygðist ekki taka…
Í borgarstjórnarkosningunum um helgina náðu fimmtán konur og átta karlar kjöri. Konurnar eru því 65%…
Sá þingmaður sem mest fékk greitt fyrir aksturskostnað í fyrra fékk 4.621.144 krónur, fyrir að…