Ég sé á Fésbókinni að sumir eru búnir að laumast til í skoða í páskaeggið og málshátturinn er það fyrsta sem þeir éta. Ofan í sig semsagt. Ef eitthvert vit er þá í málshættinum en fyrir því er aldrei nein trygging. Rím og stuðlar láta málshætti hljóma viturlega en þeir auka ekki endilega sannleiks- og vísdómsgildi þeirra. Geta jafnvel verið villandi. Þetta veit vinkona mín, sem notar gjarnan málsháttinn margur er knár, án frekari skýringar, enda eru knáindi manna líkamsvexti þeirra óviðkomandi.
Oft er flagð undir fögru skinni er álíka sönn speki. Undir mörgum fögrum skinnum leynast nefnilega hreinustu englar. Þess má geta að ég hef orðið vitfirringslega ástfangin af forljótum mönnum, sem gáfu mér nýjan skilning á orðinu drullusokkur. Dreg af því þá ályktun að ankannalegt útlit sé engin trygging fyrir fjarveru fláræðis og flagðabragða. Gallinn er sá að oft er flagð er ekki góð setning. Margur er flagð, væri kannski betra. Eða ekki. Auk þess finnst mér málsháttur ekki réttur nema hann feli í sér stuðla eða rím. Ég tek hér með upp nýjan málshátt og álíka sannan til mótvægis við gamla bullið: Margur er þrjótur, þótt hann sé ljótur.
Það er annars umhugsunarefni hvað bætist hægt í málsháttaflóruna og í raun merkilegt hvað gamlir málshættir eru lífseigir því nú notum við ekki lengur aska, hvorki undir bókvit né graut, og fáar konur eyða síðkvöldum við spunarokk, hvað þá naktar. Gaman að því samt en bætum endilega við.
Hér eru nokkur dæmi um málshætti sem ekki eru orðnir mölétnir fyrir löngu. Sumir hafa náð nokkurri útbreiðslu, aðrir eru svo til óþekktir enn. Ég ætla samt ekki að lofa neinu um vísdómsgildi þeirra. Gaman væri ef lesendur vildu bæta við nýlegum málsháttum sem þeir hafa heyrt eða samið sjálfir.
Gleðiþjálfa Kvennablaðsins finnst undarlega lítið um að notendur Fésbókarinnar viðri skemmtilegheit sín á þeim vettvangi.…
Gleðiþjálfi Kvennablaðsins tók púls á þjóðarsálinni á Fésbókinni þessa vikuna og valdi sín uppáhalds innlegg…
Á mínu heimili borðum við venjulega frekar þungan mat um helgar og fáum okkur sætabrauð…
Þyrnirósarævintýrið hefur verið mér hugleikið síðustu vikur. Það er nefnilega eitt atriði í þeirri sögu…
Hér eru nokkrar einfaldar og skemmtilegar hugmyndir sem sóma sér vel á morgunverðarborðinu um páska.…
Í einhverjum skilningi erum við að upplifa heimsendi. Við munum ekki öll deyja (nema Bubbi)…