„Þetta var bara púra klámvæðing. Minns var bara hlutgerður í druslur,“ haarderaði Geir eftir að Landsdómur kvað upp úrskurð sinn í gær.
Geir lýsir árásinni þannig að hann hafi vaknað upp eftir rosalegt fyllirí, við það að feðraveldið hafi gert tilraun til að greiða honum högg í gegnum Landsdóm.
„Annars var þetta eiginlega ekkert almennileg rassskelling, þetta var bara klámhögg, minns var svo sterkur að þeir gutu ekki flengt mig svo ég mátt’etta alveg“ sagði Geir.
Steingrímur J. Sigfússon hafnar því algerlega að flengingin hafi misheppnast. „Jújú, hann var rassskelltur strákurinn og getur sjálfum sér um kennt,“ sagði Steingrímur. Hann sagðist ekki óttast lögsókn fyrir klámhöggið enda engir dónakallar í hans flokki eða meðal dómara.
Gleðiþjálfa Kvennablaðsins finnst undarlega lítið um að notendur Fésbókarinnar viðri skemmtilegheit sín á þeim vettvangi.…
Gleðiþjálfi Kvennablaðsins tók púls á þjóðarsálinni á Fésbókinni þessa vikuna og valdi sín uppáhalds innlegg…
Á mínu heimili borðum við venjulega frekar þungan mat um helgar og fáum okkur sætabrauð…
Þyrnirósarævintýrið hefur verið mér hugleikið síðustu vikur. Það er nefnilega eitt atriði í þeirri sögu…
Hér eru nokkrar einfaldar og skemmtilegar hugmyndir sem sóma sér vel á morgunverðarborðinu um páska.…
Í einhverjum skilningi erum við að upplifa heimsendi. Við munum ekki öll deyja (nema Bubbi)…