eru að leita að sæti til afslöppunar
Prófarkalesarar þurfa helst að hafa gaman af því að ráða gátur. Einkum þegar próförkin er þýdd úr ensku. Það virðist nefnilega sem nóg sé að kunna hrafl í ensku til að fá vinnu við þýðingar en íslenskukunnátta sé álitið algert aukaatriði.
Dæmi dagsins: fullkomið sæti til afslöppunar. Ég reikna með að hér sé átt við fyrirbæri sem í mínu ungdæmi var kallað hægindastóll.
Uppáhaldsmálsgreinin mín, af öllum sem ég hef tekið að mér að lesa yfir, er þessi:
Samtöl eru fyndin og það er snúið skemmtilega upp á alls konar grín með því að manngera mörgæsir sem gefur tilefni til margra fyndinna brandara.
Það er langt síðan ég fékk þennan texta í hendurnar en ég er enn að reyna að ráða fram úr þessu dulmáli. Mér dettur helst í hug að það að snúa skemmtilega upp á grín sé þýðing á twisted humor.
Gleðiþjálfa Kvennablaðsins finnst undarlega lítið um að notendur Fésbókarinnar viðri skemmtilegheit sín á þeim vettvangi.…
Gleðiþjálfi Kvennablaðsins tók púls á þjóðarsálinni á Fésbókinni þessa vikuna og valdi sín uppáhalds innlegg…
Á mínu heimili borðum við venjulega frekar þungan mat um helgar og fáum okkur sætabrauð…
Þyrnirósarævintýrið hefur verið mér hugleikið síðustu vikur. Það er nefnilega eitt atriði í þeirri sögu…
Hér eru nokkrar einfaldar og skemmtilegar hugmyndir sem sóma sér vel á morgunverðarborðinu um páska.…
Í einhverjum skilningi erum við að upplifa heimsendi. Við munum ekki öll deyja (nema Bubbi)…