Í morgun stöðvaði ég bílinn tvisvar sinnum til að hleypa gangandi fólki yfir götu. Í bæði skiptin sáu ökumenn bílanna fyrir aftan mig ástæðu til að þenja flautuna. Í öðru tilvikinu stoppaði ég á grænu gangbrautarljósi. Í hitt skiptið við elliheimili. Ég viðurkenni að maðurinn var mjög lengi á leiðinni yfir götuna en það ku víst vera eðlilegur fylgifiskur níræðisaldursins og ég skil ekki hvernig nokkur getur lagt sig niður við að láta það fara í taugarnar á sér.

Ég nota bíl því miður frekar mikið en hef ekki orðið þess vör að yfirgangur og frekja gangandi fólks sem þarf að komast yfir götu sé áberandi vandamál í umferðinni. Það er helst við skóla og í miðbæjarkjarnanum sem maður þarf að stoppa til að hleypa fólki yfir götu. Ég hefði nú haldið að það væri bara nokkuð sjálfsagt mál. En það eru víst skiptar skoðanir um það.

Eva Hauksdóttir

Share
Published by
Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Fyndna fólkið á Facebook

Gleðiþjálfa Kvennablaðsins finnst undarlega lítið um að notendur Fésbókarinnar viðri skemmtilegheit sín á þeim vettvangi.…

57 ár ago

Skemmtilegheit vikunnar

Gleðiþjálfi Kvennablaðsins tók púls á þjóðarsálinni á Fésbókinni þessa vikuna og valdi sín uppáhalds innlegg…

57 ár ago

Fimmtudagssalat

Á mínu heimili borðum við venjulega frekar þungan mat um helgar og fáum okkur sætabrauð…

57 ár ago

Höllin sem svaf

Þyrnirósarævintýrið hefur verið mér hugleikið síðustu vikur. Það er nefnilega eitt atriði í þeirri sögu…

57 ár ago

Páskabröns

Hér eru nokkrar einfaldar og skemmtilegar hugmyndir sem sóma sér vel á morgunverðarborðinu um páska.…

57 ár ago

Að heimsfaraldri loknum

Í einhverjum skilningi erum við að upplifa heimsendi. Við munum ekki öll deyja (nema Bubbi)…

57 ár ago