Halldór Jónsson, hefur ítrekað varað við þeim stórkostlegu hættum sem fylgja innflytjendum og þá ekki síst hælisleitendum. Í þessum pistli bendir hann réttilega á hættuna sem steðjar nú að flugfarþegum sem fá sæti við hlið svertingja.
Oft var Íslendingum þörf á glöggskyggni Halldórs en líklega aldrei sem nú. Nú geysar ebola faraldur meðal svertingja í Afríku og ætla má að þeim takist að bera vírusinn í fólk, en það er aðeins ein af skelfilegum afleiðingum Schengen samningsins.
Nú hafa lesendur Halldórs bent á að einkenni ebola séu svo svæsin að ólíklegt verði að teljast að smitað fólk leggi unnvörpum í langferð. Það sem þeim yfirsést er hinsvegar að eftir aðeins sex mánuði á Íslandi, komast flóttamenn inn í íslenska heilbrigðiskerfið (að því gefnu að þeir fái dvalarleyfi sem reyndar getur tekið nokkra mánuði eða ár.) Hér eiga þeir því von á framúrskarandi þjónustu, til dæmis komu á bráðamóttöku og blóðrannsókn fyrir aðeins fjögurra mánaða laun nígerísks verkamanns. Ætla má að afrískir ebola sjúklingar muni nýta sér þessa brötalöm í kerfinu til hins ýtrasta, og drífa sig til Íslands eða í það minnsta einhverra annarra landa sem Íslendingar eiga erindi til.
Þar sem forpokaðar mannréttindastofnanir munu seint fást til að banna svertingja í flugvélum verða farþegar að grípa til sinna eigin sóttvarna. Því skalt þú, lesandi góður, tileinka þér eftirfarandi varúðarreglur:
Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…
Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…
Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…
Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…
Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…
Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…