Þegar trúleysi verður að trúarbrögðum

Í fyrstu hljómar það sem rökleg afstaða til mannsins og heimsins. Maðurinn er dýr, enginn Guð mun koma honum til bjargar eða dæma hann. Eðli hans er að komast sem best af og finna til sín. Heigæjs, greit hugmynd. Sameinumst um hana. Myndum hreyfingu sem boðar þá skoðun að maðurinn sé frjáls, jarðnesk vera, drifin áfram af frumstæðum hvötum, fullkomlega ábyrg fyrir eigin hamingju. Upprætum hindurvitni, hömpum vísindunum.

Og þar sem maðurinn er í eðli sínu hjarðdýr, verður hreyfingin að félagi með fagnaðarerindi, leiðtogum, fylgjendum og kennisetningum. Jábræður verða að söfnuði, trúarbrögð verða til. Þau taka á sig mynd vísindahyggju, húmaískrar einstaklingshyggju, félagslegs Darwinisma, þróast í þjóðernishyggju og þegar þú spyrð hvort það verði ekki að kallast daður við Nasisma er frjáls hugsun ekki lengur hluti af dæminu. Það er allavega stórkostlega varasamt að hafa orð á því. Allar skoðanir trúleysiskirkjunnar eru réttar, þær þarfnast ekki endurskoðunar og munu aldrei þarfnast endurskoðunar. Það stendur í bókinni, leiðtoginn sagði það, sjáðu bara táknin sem segja það líka. Táknhyggja verður að dulhyggju. Dulhyggjan krefst goðmagna. Hjátrú verður til.

Þessvegna getur trúleysi aldrei orðið að trúarbrögðum. Trúarbrögð bæla alltaf sjálfstæða hugsun. Þar sem tveir trúleysingjar koma saman, þar er hætta á hjarðmyndun. Þar sem tveir trúleysingjar heyja bardaga saman, þar er vísir að kirkju. Og þá er ekki lengur hægt að kalla það trúleysi.

Trúlaus maður dæmir því sjálfan sig til hugarfarslegs sjálfstæðis. Það getur verið einmanalegt og þarf töluvert hugrekki til að standa undir því.

 

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

55 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

55 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

55 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

55 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

55 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

55 ár ago