Þarf ég limágræðslu?

Ég var rétt í þessu að opna tölvupóstinn minn sem ég hafði ekki litið á í 3 daga. Í pósthólfinu vor 15 skilaboð, öll frá fyrirtæki sem síðustu vikur hefur oft á dag sent mér bréf þess efnis að ég eigi kost á að kaupa eitthvert töfralyf sem stækkar typpi og eykur stinningu. Ég hef aldrei svarað slíkum pósti heldur eytt honum jafn óðum enda hef ég ekki typpi (hvað þá typpi sem ég vil láta stækka) og þekki engan og hef aldrei þekkt neinn sem mér finnst þurfa á slíku töfraefni að halda.

Ég skil ekki almennilega hvers vegna umrætt fyrirtæki leggur það á starfsfólk sitt að senda sömu manneskjunni og það konu, þessa auglýsingu oft á dag. Getur verið að einhver á vegum fyrirtækisins hafi séð mig í sundlaugunum og ályktað að ég sé karlmaður með óvenju smáan lim? Reyndar virðist þetta fyrirtæki hafa það að markmiði að stækka öll typpi í heiminum því kunningi minn sem er óvenju tröllslega vaxinn niður, fær einnig póst frá þessu fyrirtæki. Fær kannski allt fólk í heiminum tölvupóst frá þessu fyrirtæki oft á dag? Hvers vegna oft á dag? Til þess að þessi eini maður af hverjum 1000.0000 sem er með of lítinn lim til að gagnast konu vandræðalaust nái aldrei að festa hugann við neitt annað? Eða til þess að sannfæra hina 999.999 um að stærð limsins ráði úrslitum um það hversu góðir elskhugar þeir séu og um vinsældir þeirra og velgengni í lífinu.

Ég er satt að segja orðin hundleið á þessum auglýsingum sem er sífellt verið að smygla inn á mig. Ætli eina leiðin til að losna við þær sé sú að fara í limágræðsluaðgerð og senda fyrirtækinu vottorð um að aðgerðin hafi farið fram, ásamt málum á vininum? Eða er til einföld leið til að losna við þennan ófögnuð?

 

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

54 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

54 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

54 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

54 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

54 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

54 ár ago