1 Gerðu matarplan fyrir vikuna
Þegar þú veist hvað er til í skápunum og setur saman matseðil fyrir næstu daga með tilliti til þess, þá nýtirðu ekki bara mat sem annars færi í ruslið – þú sparar líka tíma. Þeir sem hafa enga yfirsýn lenda nefnilega af og til í því að uppgötva að hveitið er búið og kartöflurnar farnar að spíra, þegar á að fara að elda og það kostar aukaferð í búðina.
2 Notaðu innkaupalista
Ekki koma við á heimleiðinni og versla eftir minni. Gerðu innkaupalista og ef þú notar snjallsíma vertu þá með listann í símanum svo hann gleymist ekki.
3 Ekki kaupa ferskvöru sem þig vantar ekki
Haltu þig við innkaupalistann þegar þú kaupir ferskvöru. Ef þú rekst á eitthvað sem gæti verið sniðugt að eiga, eða tilboð sem þú getur ekki hafnað, veltu því þá fyrir þér hver muni borða það og hvenær, og hvort eitthvað annað fari þá í ruslið í staðinn, áður en þú setur það í körfuna.
4 Ekki kaupa jurtakrydd, olíur og tilbúnar sósur bara svo það sé til heima
Á flestum heimilum þar sem ég hef eldað eru til 10-20 glös af ónýtu kryddi, eldgamlar sósur og olía sem er farin að þrána. Þurrkaðar kryddjurtir eins og oregano og rosemarin, fara að missa bragð eftir 5-6 mánuði. Það er kannski ekki dýrt að kaupa eitt kryddglas en þegar þú hendir 10 glösum af kryddi eða þarft að nota þrjár matskeiðar til að fá eitthvert bragð úr því, þá er það orðinn dálítil fjárhæð. Kauptu það sem þú veist að er í stöðugri notkun en geymdu annað þar til þú veist hvenær það verður notað.
Ég hef heyrt nokkrar afsakanir fyrir því að skipuleggja ekki matarinnkaup, hverja annarri ótrúverðugri. Ein vinkona mín hélt því lengi fram að það væri betra að ákveða á staðnum hvað hún vildi kaupa því þá gæti hún betur nýtt sér tilboð. Ég hef reynt þá aðferð en sannleikurinn er sá að það er miklu hagkvæmara að vita nokkurnveginn hvað maður ætlar að kaupa. Ef þú skipuleggur ekki innkaupin er mun líklegra að þú kaupir of mikið og/eða vörur sem passa ekki með neinu af því sem þú átt heima og þá endar hellingur í ruslinu. Það er vel hægt að leyfa sér ákveðinn sveigjanleika. Ef þú ætlaðir að kaupa appelsínur en sérð melónu á tilboði þá bara kaupirðu melónuna í staðinn. Þú þarft heldur ekkert að sleppa því að kaupa hrísgrjón eða dósamat ef þú sérð gott tilboð þótt það sé ekki á listanum en það er ekkert vit í því að safna mat sem skemmist.
Önnur algeng afsökun er sú að það sé svo tímafrekt að skoða í skápana og gera innkaupalista. Kommon… það er ekki tímafrekara að skrifa innkaupalista en að hringja heim til þess að spyrja hvort sé til sinnep heima eða fara þrjár ferðir í búðina vegna þess að maður mundi ekki hvað vantaði. Ef þú ert ekki viss er líka hætta á að þú kaupir ýmislegt „til öryggis“ og þeir sem kaupa of mikinn mat þurfa að henda.
Ef þér finnst þú ekki hafa tíma til þess að skipuleggja innkaupin og finna not fyrir það sem mun skemmast á næstunni, eða ef þú ætlar að fresta því þar til í næstu viku, spurðu þá hvort þér finnist í fullri einlægni allt í lagi að henda tólfhundruðkalli á hvern fjölskyldumeðlim í þessari viku. Það er nefnilega upphæðin sem meðalmaðurinn hendir, varlega áætlað.
Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…
Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…
Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…
Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…
Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…
Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…