Stjórnarskrártillagan er ekki fullkomin. En það er gamla stjórnarskráin ekki heldur.

Ef út í það er farið eru í gildi margar stórgallaðar lagagreinar á Íslandi, sumar stríða jafnvel beinlínis gegn stjórnarskránni, sumar stríða gegn mannréttindasáttmálum. Engum dettur þó í hug að við eigum bara að hætta að setja lög fyrr en fullkomnar lagagreinar hafa verið samdar. Við fáum seint fullkomna stjórnarskrá en tillagan sem liggur fyrir nýtur stuðnings meiri hluta þjóðarinnar, hún var unnin í ágætri sátt þjóðkjörinna fulltrúa stjórnlagaráðs og það er engin þörf fyrir sérstaka velþóknun liðsmanna Bjartrar framtíðar á henni, hvað þá velþóknun Sjálfstæðis- eða Framsóknarflokks.

Breytingartillaga Margrétar Tryggvadóttur er frábært svar við tilraunum fjórflokksins til að hundsa þjóðaratkvæðagreiðslu. Verðskuldaður löðrungur bæði í andlit svikullar ríkisstjórnar og auðvaldsflokkanna tveggja sem hafa lagt allt kapp á að eyðileggja umbótaferlið sem sett var í gang með stjórnlagaþingi og þjóðaratkvæðagreiðslu um tillöguna.

Magnúsi Orra Schram tókst næstum því að gera sig að fífli mánaðarins með ummælum sínum um að Margrét væri að innleiða “klækjastjórnmál” á Íslandi. Það mætti bara halda að fjórflokkurinn hefði hingað til ástundað heiðarleika og gagnsæi. Nei, við viljum ekki klækjastjórnmál. Við viljum bara gömlu góðu valdaklíku-, spillingar- og baktjaldamakks-stjórnmálin. Ekki einhverja róttæklinga sem sjá í gegnum skrumið og bregðast við. Það gæti orðið til þess að auka beint lýðræði í landinu. Hvílík skömm!

En Magnús Orri hreppir þó ekki titilinn í þetta sinn. Bjánakeppur mánaðarins er tvímælalaust Grétar Mar Jónsson. Auk þess að halda því fram að 17 ára gamall sonur Álfheiðar Ingadóttur, hafi stjórnað þúsundum manna á Austurvelli, eftir hennar fyrirmælum, daginn sem varla heyrðist í klukkum Dómkirkjunnar fyrir hávaða, ruglar Grétar Mar saman atburðum sem áttu sér stað þennan dag og öðrum sem urðu mörgum vikum fyrr þegar hinir svonefndu “nímenningar” voru handteknir í Alþingishúsinu. Til hamingju Grétar Mar, það þarf sjaldgæfa tegund af asnaskap til að slá Magnúsi Orra við, en þú vinnur.

Ég hef hlegið mikið í dag, svo er Magnúsi Orra og Grétari Mar fyrir að þakka. Dýpra ristir þó kæti mín yfir klækjum Margrétar Tryggvadóttur. Daginn sem stjórnarskrárfrumvarpið verður samþykkt ætla ég að drekka Margarítu. Jafnvel þótt ég þurfi að blanda hana sjálf.

 

 

admin

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

54 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

54 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

54 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

54 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

54 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

54 ár ago